Stöðva þarf hervæðingu ICE í Bandaríkjunum
ICE-liðar, sem starfa fyrir Innflytjenda- og tollgæslustofnun Bandaríkjanna (e. US. Immigration and Customs Enforcements – ICE) hafa með víðtækum hætti og í refsileysi framið mannréttindabrot á borð við aftökur án dóms og laga, fjöldahandtökur og brottvísanir. Ótti hefur gripið um sig víða vegna grímuklæddra ICE-liða sem beita ofbeldisfullum aðferðum. Bandarísk yfirvöld verða að stöðva hervæðingu og óhóflega valdbeitingu ICE.
Hervæðing leiðir til dauða
Það má greina ákveðið mynstur í Bandaríkjunum í tengslum við hervæðingu ICE sem hefur leitt til dauðsfalla. Tveir ICE-liðar skutu tvo óbreytta borgara í Minneapolis í Minnesota innan þriggja vikna. Renee Macklin Good var skotin til bana 7. janúar þegar hún fylgdist með innflytjendayfirvöldum í sínu hverfi og Alex Pretti var skotin til bana 24. janúar á meðan hann tók myndband af ICE-liða ráðast á manneskju.
Herjað á Minnesota
Frá nóvember 2025 hefur ríkisstjórn Trumps einbeitt sér að fullum þunga á innflytjendur í Minnesota-ríki. Rúmlega þrjú þúsund ICE-liðar voru sendir þangað til að herja á íbúa Minnesota af sómölskum uppruna og aðra innflytjendur. Trump hefur kallað fólk af sómölskum uppruna „rusl“ og sagt að það sé að yfirtaka Minnesota sem hafi eitt sinn verið frábært ríki.
Ofbeldi í eftirlitsleysi
ICE-liðar beita aðferðum sem minna á hernað og hafa fengið lausan tauminn til að beita ofbeldi við handtökur án eftirlits og ábyrgðar.
ICE-liðar nema fólk á brott af heimilum sínum, vinnustöðum, úr skólum og á götum úti. Börn eru aðskilin frá fjölskyldum sínum og fólk er fært í varðhald án sanngjarnrar málsmeðferðar og gegnsæis. Á fyrstu tveimur vikum ársins 2026 létust sex í varðhaldi innflytjendastofnunarinnar.

