Vernda þarf konur sem eru ásakaðar um galdra í Gana
Allt of lengi hafa ásakanir um galdra valdið fólki skaða í Gana, sérstaklega eldri konum. Þessi rótgróni siður hefur leitt til þjáningar, mismununar og ofbeldis. Fólk sem er ásakað um galdra þarfnast verndar.
Barin til dauða
Mál Akua Denteh, 90 ára frá Kafaba á Savannah-svæðinu, er eitt sorglegt dæmi um alvarlegar afleiðingar slíkra ásakana. Hún var barin til dauða 23. júlí 2020 eftir að hafa verið ásökuð um galdra. Því miður hafa hundruð til viðbótar verið ásökuð um galdra með þeim afleiðingum að hin ásökuðu sættu pyndingum og voru hrakin úr samfélögum sínum til að búa við einangrun.
Ásakanir leiða til mannréttindabrota
Þessar ásakanir leiða oft til mannréttindabrota og eru oft tilkomnar vegna hjátrúar, öfundar og gamallar trúar. Þolendur eru oftast eldri konur sem sæta grimmilegum árásum, félagslegri einangrun og eru hraktar frá heimilum sínum.
„Ég veit ekki einu sinni hvers vegna ég var ásökuð. Einhver sagðist hafa séð mig í draumi. Það var nóg.“
-Wuni, eldri kona ásökuð um galdra.
Þörf á löggjöf
Frumvarp til verndar einstaklingum sem ásakaðir eru um galdra var þróað í nánu samstarfi við helstu aðila sem þekkja vel til málefnisins.
Þar er lagt fram að:
- Ólöglegt verði að ásaka einstaklinga um galdra og refsing liggi við slíkar ásakanir.
- Gerðar verði ráðstafanir til að vernda einstaklinga sem ásakaðir eru um galdra, meðal annars með því að þeim sé veitt öruggt skjól, sálrænan stuðning og aðlögun inn í samfélagið á ný.
- Þolendur geti leitað réttar síns með skýrum lagalegum leiðum.
Frumvarpið var samþykkt af þinginu í júlí 2023 en Nana Addo Dakwa Akufo-Addo fyrrverandi forseti Gana dróg í efa að það samræmdist stjórnarskrá og neitaði því að skrifa undir það til að lögfesta.
Frumvarpið var aftur samþykkt af þinginu í mars 2025 en John Mahama núverandi forseti hefur heldur ekki skrifað undir það.

