SMS
4. febrúar 2026
Ríkisstjórnir, verksmiðjur og alþjóðleg tískufyrirtæki hagnast á kúgun verkafólks í fataiðnaði og brotum á vinnuréttindum í Bangladess, Pakistan, á Srí Lanka og Indlandi.
Fataiðnaðurinn á alþjóðamarkaði hefur lengi sætt gagnrýni vegna brota á mannréttindum sem tengjast aðfangakeðjum þeirra og viðskiptamódeli. Verkafólk í fataiðnaði í Suður-Asíu, einkum konur, er kerfisbundið svipt réttindum með óformlegum og ótryggum ráðningarsamningum, lágum launum og ótryggum starfsaðstæðum.
„Siðlaust bandalag tískufyrirtækja, verksmiðjueigenda og stjórnvalda í Bangladess, Pakistan, á Srí Lanka og Indlandi skýtur stoðum undir iðnað sem er þekktur fyrir kerfisbundin brot á mannréttindum. Fataiðnaðurinn hefur í áratugi þrifist á arðráni á ofkeyrðu, vangreiddu vinnuafli sem samanstendur að mestu leyti af konum með því að virða ekki rétt verkafólks til að stofna stéttarfélag og semja sameiginlega um sín kjör. Þetta er áfellisdómur yfir viðskiptamódeli fataiðnaðarins sem fórnar réttindum verkafólks í fataiðnaði í Bangladess, Pakistan, á Srí Lanka og Indlandi í skefjalausri gróðavon fyrir hluthafa tískufyrirtækja sem eru að mestu vestræn.“
Agnès Callamard aðalframkvæmdastjóri Amnesty International.
SMS-félagar styðja réttindi verkafólks í fataiðnaði og krefjast þess að stjórnvöld í Bangladess, Pakistan, á Srí Lanka og Indlandi tryggi góðar starfsaðstæður og félagafrelsi verkafólks.
Lestu einnig
Þú ætlar að styðja og .
Skrifaðu undir og Amnesty á Íslandi sendir viðeigandi aðilum bréf í þínu nafni. Engar aðrar persónuupplýsingar en nafn þitt munu fylgja bréfinu á viðkomandi stjórnvöld.
Með því að skrifa undir málin samþykkir þú skilmála Íslandsdeildar Amnesty International um undirskriftir og persónuverndarstefnu