Alþjóðlegt: Ríki verða efla viðnám gegn árásum á kynjajöfnuð og réttindi kvenna á fundi SÞ

Í ljósi bakslags í réttindum kvenna á heimsvísu og í skugga Epsteins-skjalanna kallar sendinefnd Amnesty International, undir forystu aðalframkvæmdastjórans Agnèsar Callamards, eftir öflugri aðgerðum til að vernda og efla réttindi kvenna og stúlkna á 70. fundi nefndar Sameinuðu þjóðanna um stöðu kvenna (CSW70) í New York dagana 9.–19. mars.

Sendinefndin mun funda með aðildarríkjum Sameinuðu þjóðanna, embættisfólki og fulltrúum borgaralegs samfélags til að þrýsta á um aukið réttlæti fyrir þolendur kynbundins ofbeldis  og raunverulega ábyrgð gerenda, vernd kyn- og frjósemisréttinda, og sterkari vernd fyrir kvenréttindafrömuði.

„Nefndin um stöðu kvenna kemur saman á sérlega aðkallandi tímum, þegar árásir á kynjajöfnuð eiga sér stað víða um heim og margir kvenréttindafrömuðir og femínísk samtök fá ekki að koma til Bandaríkjanna.“

Agnès Callamard.

Vel fjármagnaðar og samhæfðar hreyfingar gegn mannréttindum, sem njóta beins eða óbeins stuðnings Bandaríkjanna, Rússlands og margra annarra stjórnvalda, vinna markvisst að því að afnema áratuga framfarir.

Valdamikil ríki beita kyni sem vopni til að réttlæta kúgun og setningu refsilaga. Fyrirtæki og aðrir aðilar utan ríkisvaldsins kynda undir siðfár (e.moral panic) með hatursfullum frásögnum og rangfærslum. Saman vinna þessi öfl að því að draga úr sjálfræði kvenna yfir eigin líkama, beita ofbeldi til að svipta þær réttindum, ala á ótta og þrengja að borgaralegu rými.

Á sama tíma hafa svonefnd „Epstein-skjöl“ afhjúpað alþjóðlegt glæpanet áhrifamestu karlmanna heims í stjórnmálum, fjármálageiranum og menningarlífi sem um áratugaskeið hafa komist hjá refsingu fyrir stórfellda kynferðislega misnotkun og ofbeldi gegn konum, stúlkum og börnum. Þeir hafa  spillt stjórnvöldum, mörkuðum og samfélögum með háttsemi sinni og fest í sessi misbeitingu valds. Það er ógeðfellt að verða vitni að þeim miklum hindrunum sem mæta þolendunum í leit að sannleika, réttlæti og skaðabótu, þolendum sem verða jafnframt fyrir frekara misrétti með birtingu viðkvæmra persónuupplýsinga án þeirra samþykkis. Sama kerfislæga misréttið, kvenfyrirlitningin og kerfisbundna refsileysið sem torveldar aðgangi þeirra að réttlæti ver jafnframt gerendur og  viðheldur ofbeldi gegn konum og stúlkum um allan heim, meðal annars með skipulögðum árásum á jöfnuð.

„Þessi 70. fundur nefndar Sameinuðu þjóðanna um stöðu kvenna er mikilvægt tækifæri fyrir kvenréttindafrömuði, aðgerðasinna og aðildarríki til að berjast gegn kerfisbundnum árásum sem vinna á móti kynjajafnrétti. Með því að benda skýrt á þá aðila og þau öfl sem standa að baki árásunum, skipuleggja sameiginlegar aðgerðir og tryggja starfhæft kerfi sem dregur gerendur til ábyrgðar án ívilnunar eða undanbragða.“

Agnès Callamard

Ný greinargerð sýnir vaxandi alþjóðlegt viðnám

Í nýrri skýrslu bendir Amnesty International á að þrátt fyrir fordæmalausar árásir á réttindi kvenna eflist alþjóðleg andspyrna gegn atlögum stjórnvalda að réttindum kvenna og andófi.

„Síðastliðið ár hefur sýnt að jafnvel þegar ríki bregðast skyldum sínum getur sameiginlegur kraftur samfélaga varið og eflt kynjajafnrétti. Konur, stúlkur, hinsegin fólk og stuðningsfólk þeirra hafa ekki játað sig sigruð eða látið undan hótunum, heldur stíga þau fram tvíefld og berjast af hugrekki til að afhjúpa, fordæma og veita mótspyrnu gegn brotum á mannréttindum,“ segir Agnès Callamard.

Skýrslan sýnir hvernig samstaða og skipulögð barátta getur skilað árangri þrátt fyrir kerfisbundið bakslag.

Í henni er meðal annars greint frá eftirfarandi baráttu víða um heim:

  • Afganistan: Konur í fjölmiðlun halda áfram störfum þrátt fyrir víðtækar takmarkanir talibana.
  • Búrkína Fasó: Lágmarksaldur hjónabands var loks hækkaður í 18 ár eftir langvarandi þrýsting.
  • Kína: Femínískir aðgerðasinnar veita mótspyrnu þrátt fyrir að sæta  eftirlit og refsingu.
  • Gaza: Mannréttindasamtök hafa lagt sitt af mörkum til að afhjúpa hópmorð Ísraels gegn Palestínubúum.
  • Ungverjaland: Um 200.000 manns tóku þátt í gleðigöngunni í Búdapest þrátt fyrir bann stjórnvalda.
  • Malaví: Hæstiréttur staðfesti rétt 14 ára þolanda nauðgunar til öruggs þungunarrofs.
  • Rómönsk-Ameríka: Aðgerðasinnar halda áfram að verja og efla kyn- og frjósemisréttindi eftir að sigrar náðust í þeim málum en hart er sótt að þessum réttindi  enn.