ICE-liðar, sem starfa fyrir Innflytjenda- og tollgæslustofnun Bandaríkjanna (e. US. Immigration and Customs Enforcements – ICE) hafa með víðtækum hætti og í refsileysi framið mannréttindabrot á borð við aftökur án dóms og laga, fjöldahandtökur og brottvísanir.
Tveir ICE-liðar skutu tvo óbreytta borgara í Minneapolis í Minnesota innan þriggja vikna. Renee Macklin Good var skotin til bana 7. janúar þegar hún fylgdist með innflytjendayfirvöldum í sínu hverfi og Alex Pretti var skotin til bana 24. janúar á meðan hann tók myndband af ICE-liða ráðast á manneskju.
ICE-liðar beita aðferðum sem minna á hernað og hafa fengið lausan tauminn til að beita ofbeldi við handtökur án eftirlits og ábyrgðar.
ICE-liðar nema fólk á brott af heimilum sínum, vinnustöðum, úr skólum og á götum úti. Börn eru aðskilin frá fjölskyldum sínum og fólk er fært í varðhald án sanngjarnrar málsmeðferðar og gegnsæis. Á fyrstu tveimur vikum ársins 2026 létust sex í varðhaldi innflytjendastofnunarinnar.
SMS-félagar krefjast þess að hin ítrekuðu mannréttindabrot og hervæðing ICE í Bandaríkjunum verði stöðvuð, ásamt því að öll tilfelli um óhóflega valdbeitingu verði rannsökuð.

