Fréttir
10. apríl 2019Árleg skýrsla Amnesty International um stöðu dauðarefsingarinnar er komin út. Aftökum á heimsvísu árið 2018 fækkaði um þriðjung frá árinu áður og fjöldi aftaka var með allra lægsta móti í áratug.
„Þessi mikla fækkun á alþjóðavísu sýnir að jafnvel ólíklegustu lönd eru farin að breyta högum sínum og átta sig á því að dauðarefsingin er ekki rétta svarið. Þrátt fyrir skref aftur á bak í sumum tilfellum er veruleg fækkun á aftökum hjá þeim sem hafa staðið sig hvað verst. Það gefur von um að það sé aðeins tímaspursmál hvenær þessi grimma refsing verði úr sögunni,“ segir Kumi Naidoo, aðalframkvæmdastjóri Amnesty International.
Fækkun á aftökum árið 2018
Aftökum í Íran fækkaði um helming en aftökur þar í landi eru algengar. Fækkunin kemur í kjölfarið á breytingum á löggjöf um vímuefni. Í Írak, Pakistan og Sómalíu fækkaði aftökum einnig töluvert. Fækkunin leiddi til þess að fjöldi aftaka á alþjóðavísu fækkaði úr í það minnsta 993 árið 2017 í 690 árið 2018.
„Ég fékk áfall þegar dómarinn sagði mér að ég hefði verið dæmd til dauða. Ég hafði ekki gert neitt til að eiga það skilið að deyja. Ég trúði ekki þessu mikla óréttlæti, sérstaklega gegn konum. Ég hafði aldrei hugleitt hvernig það væri að vera tekin af lífi fyrr en þarna. Það fyrsta sem kom upp í huga minn var: Hvernig ætli fólki líði við aftöku? Hvað gerir það? Mál mitt var sérstaklega erfitt þar sem fjölskylda mín hafði afneitað mér þegar dómur féll. Ég þurfti að takast á við áfallið ein.“
Noura Hussein, ung súdönsk kona,sem var dæmd til dauða í maí 2018 fyrir að drepa manninn sem hún var þvinguð til að giftast og reyndi að nauðga henni.
Dauðadómur hennar var mildaður í fimm ára fangelsisvist eftir alþjóðlega herferð Amnesty International.
Nokkur ríki spilla jákvæðri þróun
Ekki eru þó einungis jákvæðar fréttir sem berast úr þessum málaflokki. Amnesty International greindi aukningu á aftökum í Hvíta-Rússlandi, Japan, Singapúr, Suður-Súdan og Bandaríkjunum á síðasta ári. Taíland hóf aftökur að nýju í fyrsta sinn frá árinu 2009 og forseti Sri Lanka, Maithripala Sirisena, tilkynnti að aftökur yrðu teknar upp í landinu á ný eftir 40 ára hlé og auglýsti eftir böðlum í febrúar 2019. Botsvana, Súdan og Taivan hófu einnig aftökur að nýju árið 2018.
„Örfá ríki hafa spillt þeirri jákvæðu þróun sem átti sér stað árið 2018 og fara, skammarlega, gegn straumnum. Fjöldi aftaka í Japan, Singapúr og Suður-Súdan var sá hæsti miðað við undanfarin ár og Taíland hóf aftökur á ný eftir næstum áratuga aftökuhlé. Þessum löndum fer þó fækkandi. Ég skora á öll lönd sem enn beita dauðarefsingunni að vera frökk og stöðva þessa andstyggilegu refsingu strax,“ segir Kumi Naidoo
Flestar aftökur í Kína
Enn á ný fóru flestar aftökur fram í Kína en ekki eru til nákvæmar tölur um fjöldann þar sem upplýsingarnar teljast til ríkisleyndarmála. Amnesty International telur að þúsundir fanga séu dæmdir og teknir af lífi þar á hverju ári.
Árið 2018 voru a.m.k. 454 fangar teknir af lífi í Íran, Írak og Sádi-Arabíu. Íran framkvæmdi 253 aftökur, þriðjung allra aftaka sem skráðar voru á alþjóðavísu, þrátt fyrir töluverða fækkun á aftökum þar í landi.
Í Írak fjórfjölduðust dauðadómarnir, úr a.m.k. 65 árið 2017 í a.m.k. 271 árið 2018. Fjölgun dauðadóma í Egyptalandi var um 75%, úr a.m.k. 402 árið 2017 í a.m.k. 717 árið 2018. Þessa fjölgun má rekja til þess að egypsk yfirvöld hafa á skelfilegan hátt fellt dauðadóma í massavís eftir verulega ósanngjarna málsmeðferð byggða á „játningum“ sem hafa verið fengið með pyndingum og ófullnægjandi rannsókn lögreglu.
Víetnömsk yfirvöld birtu opinberlega fjölda aftaka fyrir síðasta ár en það hefur aldrei áður gerst. Fjöldi aftaka þar var í það minnsta 85 árið 2018 og er Víetnam því ofarlega á lista yfir þau lönd sem framkvæmdu flestar aftökur.
Hồ Duy Hải var sakfelldur fyrir þjófnað og morð eftir að hafa að hans sögn sætt pyndingum til að skrifa undir „játningu“. Hann var dæmdur til dauða árið 2008. Hann situr á dauðadeild í Víetnam þar sem hann er í hættu á að vera tekin af lífi. Það hefur haft skaðleg áhrif á fjölskyldu hans vegna áhyggja af dauðadóminum.
Móðir Hồ Duy Hải sagði Amnesty International: „Það eru liðin 11 ár frá handtöku hans og fjölskylda okkar er sundruð. Ég þoli ekki þennan sársauka lengur. Það særir mig svo mikið þegar ég hugsa til þess hversu sonur minn þjáist í fangelsi. Ég myndi vilja að alþjóðasamfélagið hjálpaði okkur að sameina fjölskyldu okkar á ný. Þið eruð eina von mín.“
Á heildina litið er dauðarefsingin á undanhaldi og heimurinn að þokast í átt að afnámi þessarar grimmu og ómannúðlegu refsingu.
„Hægt og rólega er að nást alþjóðleg sátt um að binda enda á beitingu dauðarefsingarinnar. Amnesty International hefur barist fyrir stöðvun aftaka í rúm 40 ár og baráttunni er langt frá því lokið þar sem rúmlega 19.000 fangar eru enn á dauðadeild um heim allan. Raunveruleg skref hafa verið tekin til að afnema dauðarefsinguna, til dæmis í Búrkína Fasó og Bandaríkjunum. Nú er það undir öðrum löndum komið að fylgja í fótspor þeirra. Við viljum öll búa í öruggu samfélagi en aftökur eru aldrei lausnin. Með áframhaldandi stuðningi fólks um allan heim getum við og munum binda enda á dauðarefsinguna fyrir fullt og allt,“ segir Kumi Naidoo að lokum.
Alþjóðleg þróun í átt að afnámi dauðarefsingarinnar
Búrkína Fasó innleiddi í júní á síðasta ári ný hegningarlög þar sem dauðarefsingin er afnumin. Í febrúar og júlí tilkynntu Gambía og Malasía opinberlega um aftökustopp. Í Washington-fylki í Bandaríkjunum var úrskurðað að dauðarefsingin samræmdist ekki stjórnarskrá.
Á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í desember kaus 121 land með alþjóðlegu banni á dauðarefsingunni. Aldrei áður hafa eins mörg lönd staðið með slíku banni. Aðeins 35 lönd greiddu atkvæði gegn því.
Í lok ársins 2018 höfðu 106 lönd afnumið dauðarefsinguna fyrir alla glæpi og 142 lönd afnumið dauðarefsinguna í lögum eða í framkvæmd.
Hér má lesa skýrsluna:
Lestu einnig
Þú ætlar að styðja og .
Skrifaðu undir og Amnesty á Íslandi sendir viðeigandi aðilum bréf í þínu nafni. Engar aðrar persónuupplýsingar en nafn þitt munu fylgja bréfinu á viðkomandi stjórnvöld.
Með því að skrifa undir málin samþykkir þú skilmála Íslandsdeildar Amnesty International um undirskriftir og persónuverndarstefnu