SMS
9. janúar 2020Þann 29. nóvember 2019 handtóku óeinkennisklæddir lögreglumenn blaðamennina Solafa Magdy, Hossam el-Sayed og Mohamed Salah á kaffihúsi í Kaíró höfuðborg Egyptalands. Farsímar þeirra, tölvur og bílar voru gerð upptæk. Degi síðar voru blaðamennirnir úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna rannsóknar á ákærum á hendur þem. Solafa og Mohamed eru ákærð fyrir „að ganga í hryðjuverkahóp“ og „dreifingu á fölskum fréttum“ á meðan Hossam er ákærður fyrir „félagaaðild að hryðjuverkasamtökum“. Leynilögreglumenn hafa beitt Solafa barsmíðum fyrir að neita að veita aðgang að farsíma sínum. Saksóknarinn framlengdi síðan varðhald þeirra um 15 daga á meðan rannsókn stæði yfir.
Skráðu þig í sms-aðgerðanetið hér! Sendu svo AKALL í númerið 1900 til að skrifa undir málið.
Amnesty International telur að Solafa, Hossam og Mohamed séu samviskufangar í haldi einungis vegna vinnu sinnar sem blaðamenn og fyrir að verja fórnarlömb mannréttindabrota.
Mynd tengist ekki fréttinni beint: Samviskufanginn og fjölmiðlaljósmyndarinn Mahmoud Abu Zeid í réttarhöldum árið 2018 í Egyptalandi.
Lestu einnig
Þú ætlar að styðja og .
Skrifaðu undir og Amnesty á Íslandi sendir viðeigandi aðilum bréf í þínu nafni. Engar aðrar persónuupplýsingar en nafn þitt munu fylgja bréfinu á viðkomandi stjórnvöld.
Með því að skrifa undir málin samþykkir þú skilmála Íslandsdeildar Amnesty International um undirskriftir og persónuverndarstefnu