Egyptaland: Meðlimir trúarhóps pyndaðir
Á annan tug meðlima trúarhópsins Ahmadi Religion of Peace and Light hafa verið handteknir að geðþótta síðustu 7 mánuði fyrir það eitt að nýta trú- og hugsanafrelsi sitt.
Á annan tug meðlima trúarhópsins Ahmadi Religion of Peace and Light hafa verið handteknir að geðþótta síðustu 7 mánuði fyrir það eitt að nýta trú- og hugsanafrelsi sitt.
Abdul- Baqi Saeed Abdo, umsækjandi um alþjóðlega vernd frá Jemen, hefur verið í haldi að geðþótta í rúmlega 20 mánuði í Egyptalandi og stendur nú frammi fyrir því að vera sendur til heimalandsins þar sem líf hans er í hættu.
Ibrahim Metwaly, mannréttindalögfræðingur og meðstofnandi samtaka fyrir fjölskyldur hinna horfnu í Egyptalandi (e. Families of the Disappeared in Egypt) hefur verið í haldi að geðþótta síðan hann var handtekinn þann 10. september 2017.
Anas al-Beltagy, sem hefur verið í haldi að geðþótta í rúm 9 ár fyrir það eitt að vera sonur stjórnarandstæðings, er nú í haldi án samskipta við umheiminn í Badr-fangelsinu nærri Kaíró.
Alaa Abdel Fattah er egypskur-breskur aðgerðasinni og samviskufangi í Egyptalandi. Mohamed Baker er mannréttindalögfræðingur. Þeir voru báðir handteknir þann 29. september 2019. Síðustu níu ár hefur Alaa Abdel Fattah eytt að mestum hluta í haldi að geðþótta vegna gagnrýni á þarlend stjórnvöld. Nú er hann í lífshættu eftir 7 mánuði í hungurverkfalli.
Aðalframkvæmdastjóri Amnesty International, Agnès Callamard, er stödd á loftslagsráðstefnunni COP27 sem haldin er í Sharm El-Sheikh í Egyptalandi dagana 6.-18. nóvember. Amnesty International kallar eftir því að leiðtogar heims sýni opinbera samstöðu með þolendum mannréttindabrota í Egyptalandi og þrýsti á egypsk yfirvöld að láta af áralöngum brotum á mannréttindum.
Aisha el-Shater, 41 árs dóttir leiðtoga Múslímska bræðralagsins (Muslim Brotherhood), og eiginmaður hennar Mohamed Abo Horeira hafa verið í haldi í rúm þrjú og hálft ár vegna fjölskyldutengsla við bræðralagið og fyrir að nýta mannréttindi sín með friðsamlegum hætti. Mál þeirra er nú fyrir neyðarrétti vegna falskra ákæra.
Enn berast góðar fréttir í tengslum við herferð okkar Þitt nafn bjargar lífi. Ibrahim Ezz El-Din, mannréttindafrömuður sem var samviskufangi, var leystur úr haldi í Egyptalandi þann 26. apríl eftir að hafa setið 34 mánuði í fangelsi fyrir mannréttindastörf sín. Hann var aldrei formlega ákærður en var í haldi vegna rannsóknar á því hvort hann „tilheyrði hryðjuverkahópi“. Í 167 daga var honum haldið í leynd þar sem hann sætti pyndingum og fjölskylda hans vissi ekki hvar hann var niðurkominn.
Þann 29. nóvember 2019 handtóku óeinkennisklæddir lögreglumenn blaðamennina Solafa Magdy, Hossam el-Sayed og Mohamed Salah á kaffihúsi í Kaíró höfuðborg Egyptalands. Farsímar þeirra, tölvur og bílar voru gerð upptæk. Degi síðar voru blaðamennirnir úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna rannsóknar á ákærum á hendur þem. Solafa og Mohamed eru ákærð fyrir „að ganga í hryðjuverkahóp“ og „dreifingu á fölskum fréttum“ á meðan Hossam er ákærður fyrir „félagaaðild að hryðjuverkasamtökum“. Leynilögreglumenn hafa beitt Solafa barsmíðum fyrir að neita að veita aðgang að farsíma sínum. Saksóknarinn framlengdi síðan varðhald þeirra um 15 daga á meðan rannsókn stæði yfir.
Þann 22. september 2019 handtóku óeinkennisklæddir lögreglumenn mannréttindalögfræðinginn og aðgerðasinnann Mahienour el-Masry þegar hún var að ganga út úr byggingu saksóknara í borginni Alexandríu. Saksóknari yfirheyrði síðan Mahienour el-Masry út af ákærum á hendur henni sem enginn fótur er fyrir, þar á meðal fyrir „að aðstoða hryðjuverkahóp“, og „dreifingu á fölskum fréttum“ í máli sem tengist mótmælum gegn ríkisstjórn Egyptalands sem fram fóru í mars 2019. Saksóknarinn fyrirskipaði 15 daga varðhald yfir henni í Al Qanater kvennafangelsi á meðan að rannsókn stæði yfir.
Malak al Kashef er 19 ára trans kona frá Egyptalandi sem haldið er í karlafangelsi eftir að hafa verið ranglega sökuð um glæp. Malak er mannréttindasinni og þekkt fyrir hugrekki í baráttu sinni fyrir réttindum hinsegin fólks í Egyptalandi.