SMS

21. júlí 2025

Íran: Fangar í Tehran í hættu eftir árásir Ísraels

Hundruð fanga í Evin-fang­elsinu í Tehran, þar á meðal einstak­lingar í haldi að geðþótta, búa við grimmi­legar og ómann­legar aðstæður.

Fjöl­margir fangar voru færðir yfir í yfir­full fang­elsi eftir að loft­árásir Ísraels þann 23. júní eyði­lögðu hluta af Evin-fang­elsinu. Írönsk yfir­völd halda leyndum stað­setn­ingu fjölda fanga og afdrifum þeirra sem stað­settir voru í ákveðnum álmum í Evin-fang­elsinu. Það getur talist getur til þving­aðra manns­hvarfa sem er brot á alþjóða­lögum. Fang­arnir eiga á hættu að sæta pynd­ingum og annarri illri meðferð.  

Mynd:(AFP /Getty Images)

SMS-félagar krefjast þess að fangar í haldi að geðþótta verði leystir úr haldi ásamt því að upplýst verði um stað­setn­ingu þeirra sem voru í haldi í álmum 2A, 209, 240 and 241 í Evin-fang­elsi þegar árásir Ísraels áttu sér stað 23. júní. 

Lestu einnig