Fréttir
12. maí 2020Íslandsdeild Amnesty International kynnir með stolti fyrsta fulltrúa deildarinnar í Global Youth Collective, alþjóðlegu ungmennaráði Amnesty International. Þórhildur Elísabet Þórsdóttir var valin í byrjun maí sem fulltrúi okkar í ráðinu. Hún hefur verið meðlimur ungliðahreyfingar Íslandsdeildarinnar um langt skeið og sinnt þar ýmsum sjálfboðaliða- og aðgerðastörfum. Hún var formaður stjórnar ungliðahreyfingarinnar frá 2016 til 2019, verið fulltrúi deildarinnar á ráðstefnum og fundum erlendis og stofnaði Háskólafélag Amnesty í Háskóla Íslands ásamt öðrum haustið 2018. Þórhildur situr nú í aðalstjórn Íslandsdeildarinnar og er jafnframt yngsti stjórnarmeðlimurinn en hún var aðeins 19 ára þegar hún var kosin í stjórnina í mars 2019.
Alþjóðlegt ungmennaráð Amnesty International samanstendur af 16 öflugum ungum aðgerðasinnum og starfsfólki samtakanna alls staðar að úr heiminum. Hópurinn er valinn út frá leiðtogahæfni og þátttöku í ungliðastarfi og er hlutverk þeirra meðal annars að leggja til hugmyndaauðgi og skapandi nálganir í starfi samtakanna. Þá er þeim ætlað að leita tækifæra og leiða til að framkvæma markmið alþjóðlegu ungmennaáætlunar Amnesty International. Ráðið starfar í fimm heimsálfum og vinnur að aukinni þátttöku ungmenna og sér til þess að sýn ungmenna spili hlutverk í öllu starfi Amnesty International: í stjórnsýslu, herferðastarfi, stefnumótun og mannréttindastarfi.
Í ráðinu fá raddir ungra aðgerðasinna og málefni sem eru ungu fólki hugleikin hljómgrunn. Meðlimir ráðsins hafa áhrif á skipulag samtakanna á alþjóðavísu með ráðgjöf og upplýsingum um hvernig þörfum ungra aðgerðasinna getur verið betur mætt í öllu starfi samtakanna.
Í ráðinu eru að jafnaði tveir ungliðar og einn starfsmaður frá hverjum heimshluta. Þórhildur er fulltrúi Evrópu og Mið-Asíu ásamt ungliða frá Portúgal og starfsmanni frá skrifstofu samtakanna í Bretlandi. Hver fulltrúi er valinn af meðlimum ráðsins í samstarfi við alþjóðaskrifstofu Amnesty International til tveggja ára í senn. Þórhildur er vel að því komin að ganga til liðs við ráðið og verðugur fulltrúi. Hún hefur sýnt mikla leiðtogahæfni, áræðni og sinnt störfum sínum innan raða ungliðahreyfingar Íslandsdeildarinnar af óeigingirni, dugnaði og gleði. Íslandsdeild Amnesty International samgleðst Þórhildi innilega og óskar henni góðs gengis í þessu nýja hlutverki í þágu mannréttinda.
Til hamingju Þórhildur okkar!
Lestu einnig
Þú ætlar að styðja og .
Skrifaðu undir og Amnesty á Íslandi sendir viðeigandi aðilum bréf í þínu nafni. Engar aðrar persónuupplýsingar en nafn þitt munu fylgja bréfinu á viðkomandi stjórnvöld.
Með því að skrifa undir málin samþykkir þú skilmála Íslandsdeildar Amnesty International um undirskriftir og persónuverndarstefnu