Fréttir
18. maí 2021Ísraelski herinn hefur sýnt að hann ber enga virðingu fyrir lífi óbreyttra palestínskra borgara í loftárásum sínum á íbúðarhúsnæði. Heilu fjölskyldurnar hafa látið lífið, þar á meðal börn, í árásum sem geta talist stríðsglæpir.
Amnesty International hefur skráð fjórar banvænar árásir Ísraela á íbúðarhúsnæði án nokkurrar viðvörunar og kallar eftir því að Alþjóðlegi sakamáladómstólinn (e. ICC) rannsaki umsvifalaust þessar árásir sem stríðsglæpi. Blóðbaðið heldur áfram í Gaza og að minnsta kosti. 198 palestínubúar hafa látið lífið í árásunum, þar á meðal 58 börn og fleiri en 1.220 einstaklingar hafa særst. Tíu einstaklingar hafa látið lífið í árásum á Ísrael, þar á meðal tvö börn og að minnsta kosti. 27 særst í árásum frá Palestínu.
„Skelfilegt mynstur er að myndast hjá Ísrael þar sem loftárásum er beint að íbúðarhúsnæðum og heimilum. Í sumum tilfellum hafa heilu fjölskyldurnar verið grafnar undir braki eftir að byggingin hrundi.“
Saleh Higazi, framkvæmdastjóri Amnesty International í Mið-Austurlöndum og Norður-Afríku.
Samkvæmt skrifstofu Sameinuðu þjóðanna um samræmdar aðgerðir í mannúðarmálum (e. UNOCHA) hafa fleiri en 2.500 einstaklingar misst heimili sín vegna eyðileggingar af völdum loftárása og fleiri en 38.000 einstaklingar orðið heimilislausir og leitað skjóls í 48 skólum á vegum Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna á Gaza (e. UNRWA).
Amnesty International hefur áður birt vísbendingar um að ísraelski herinn hafi af ásetningi haft stefnu um að miða árásum á heimili í átökunum 2014.
Mynd: Heimili al-Atar fjölskyldunnar
Handahófskenndar árásir vopnaðra hópa í Palestínu á Ísrael hafa einnig sært og drepið óbreytta borgara ásamt því að eyðileggja heimili og eignir. Eldflaugarnar sem skotið er frá Gaza til Ísraels eru ónákvæmar og notkun þeirra brýtur í bága við alþjóðleg mannúðarlög sem banna notkun vopna sem eru handahófskennd. Þessar árásir ættu einnig að vera rannsakaðar af Alþjóðlega sakamáladómstólnum sem stríðsglæpir.
„Með þessum hræðilegu árásum á heimili fjölskyldna án nokkurrar viðvörunar sýnir Ísrael lífi Palestínubúa enga virðingu, fólks sem þjáist nú þegar vegna ólöglegrar herkvíar á Gaza sem hófst árið 2007.“
Saleh Higazi
Árásir Ísraela hafa einnig eyðilagt vatns- og rafmagnsveitur, húsnæði fyrir heilbrigðisþjónustu og stöðvað starfsemi afsöltunarstöðvar í Norður–Gaza sem veitir meira en 250.000 einstaklingum hreint vatn.
Tortímandi árásir á heimili
Á milli eitt og tvö um nótt aðfaranótt 16. maí hóf Ísrael skæða loftárás á íbúðarhverfi og húsnæði í Gaza. Tvö íbúðarhúsnæði eyðilögðust í árásunum og 30 einstaklingar létu lífið, þar á meðal 11 börn.
Rétt fyrir miðnætti þann 14. maí var þriggja hæða heimili al-Atar fjölskyldunnar skotmark loftárása Ísraels. Hin 28 ára Lamya Hassan Mohammed Al-Atar og þrjú börn hennar Islam sjö ára, Amira sex ára og Mohammed átta mánaða létu lífið í árásunum.
,,Ég kom að húsinu sem er á þremur hæðum og með 20 íbúa, ég reyndi að finna fólk en gat það ekki. Svo kom björgunarteymi að aðstoða og við fundum að lokum dóttur mína, þriggja barna móður, með börnum sínum, eitt þeirra sem er smábarn, undir einni steypusúlu hússins. Öll voru þau látin. Hinir íbúarnir virðast hafa náð að flýja og komust á spítala. Ég er harmi sleginn.”
Faðir Lamya, Hassan Al-Atar sem kom á vettvang árásarinnar.
Lestu einnig
Þú ætlar að styðja og .
Skrifaðu undir og Amnesty á Íslandi sendir viðeigandi aðilum bréf í þínu nafni. Engar aðrar persónuupplýsingar en nafn þitt munu fylgja bréfinu á viðkomandi stjórnvöld.
Með því að skrifa undir málin samþykkir þú skilmála Íslandsdeildar Amnesty International um undirskriftir og persónuverndarstefnu