SMS

26. apríl 2024

Kína: Leik­stjóri hand­tekinn fyrir mynd um mótmæli

Chen Pinlin er leik­stjóri heim­ilda­mynd­ar­innar Urumqi Middle Road (乌鲁木齐中路), sem fjallar um frið­sam­legu mótmæla­hreyf­inguna White Paper Movement.

Skráðu þig í SMS-aðgerðanetið hér.

Hreyf­ingin mótmælti stefnu Kína á tímum kórónu­veirufar­ald­ursins sem einkenndist af langvar­andi útgöngu­bönnum, strangri ritskoðun og eftir­liti.

Chen birti  heim­ilda­myndina á ársaf­mæli hreyf­ing­ar­innar. Hann var hand­tekinn 5. janúar 2024 og er í haldi í Baoshan-fang­elsinu í Sjanghaí og ákærður fyrir að „skapa rifr­ildi og egna til átaka”. Hann á yfir höfði sér fimm ára fang­els­isdóm ef sakfelldur.

SMS félagar krefjast þess að Chen Pinlin verði tafar­laust leystur úr haldi án skil­yrða.

 

Lestu einnig