SMS

6. mars 2025

Kólumbía: Komum í veg fyrir nauð­unga­flutn­inga fiski­manna­sam­fé­lags

Fiski­manna­sam­tökin FEDEPESAN tilkynntu þann 15. febrúar að þau séu tilneydd til að flytja á brott heilt samfélag frá vötnum og ám í grennd við Barr­anca­ber­meja í Kólumbíu.

Síðustu ár hafa vopn­aðir hópar reynt að ná stjórn á vötn­unum með  áreiti, hótunum, ránum, fjár­kúg­unum og tilraunum til mann­dráps á meðlimum FEDEPESAN samtak­anna. Vopnuðu hóparnir vilja nýta vötnin í eigin þágu en einnig vilja þeir hefna fyrir opin­bera fordæm­ingu FEDEPESAN samtak­anna á meintum tilvikum meng­unar og spill­ingar sem hafa neikvæð áhrif á umhverfið í kring. 

Meðlimir FEDEPESAN samtak­anna óttast að fara út til veiða og geta þar með ekki aflað tekna eða séð fyrir fjöl­skyldum sínum. Ástandið ógnar grund­vall­ar­rétt­indum þeirra, þar á meðal rétt­inum til atvinnu, til fæðis og rétt­inum til yfir­ráð­ar­svæðis þeirra og til öryggis. 

SMS-félagar krefjast þess að ríkis­lög­reglan tryggi öryggi meðlima FEDEPESAN samtak­anna og komi í veg fyrir nauð­unga­flutn­inga samfé­lagsins.

Skráðu þig í SMS-aðgerðanetið hér.

Lestu einnig