Kólumbía: Komum í veg fyrir nauðungaflutninga fiskimannasamfélags
Fiskimannasamtökin FEDEPESAN tilkynntu þann 15. febrúar að þau séu tilneydd til að flytja á brott heilt samfélag frá vötnum og ám í grennd við Barrancabermeja í Kólumbíu.
Fiskimannasamtökin FEDEPESAN tilkynntu þann 15. febrúar að þau séu tilneydd til að flytja á brott heilt samfélag frá vötnum og ám í grennd við Barrancabermeja í Kólumbíu.
Vopnuð átök í Catatumbo-héraðinu í Norðaustur-Kólumbíu milli tveggja vopnaðra hópa hófust 16. janúar síðastliðinn. Átökin eru á milli uppreisnarhreyfingarinnar ELN og andhófshópsins EMBF sem var stofnaður þegar skæruliðahreyfingin FARC leystist upp.
Rannsaka þarf morðið á Kevin Agudelo sem átti sér stað í aðgerðum lögreglu. Þúsundir fólks fór út á götur í þjóðarverkfalli í mörgum borgum Kólumbíu árið 2021 til að krefjast réttar síns. Viðbrögð stjórnvalda var að ráðast á og refsa þeim einstaklingum sem létu í sér heyra. Flest mannréttindabrot í tengslum við mótmælin áttu sér stað í borginni Cali.
Alltof oft er lögreglan of fljót að grípa til valdbeitingar, oft gegn friðsömum mótmælendum sem eru einungis að nýta rétt sinn til að koma saman með friðsömum hætti. Á undanförnum árum og á tímum heimsfaraldursins hafa stjórnvöld víðs vegar um heim takmarkað tjáningarfrelsið og réttinn til friðsamlegrar samkomu, oft með ofbeldisfullum hætti.
Nú er undirbúningur hafinn fyrir árlegu alþjóðlegu herferð Amnesty International, Þitt nafn bjargar lífi sem ýtt verður úr vör síðar á árinu. Árið 2020 söfnuðust fjöldi undirskrifta í herferðinni til stuðnings málum tíu þolenda mannréttindabrota. Á Íslandi söfnuðust 70.405 undirskriftir en á heimsvísu var gripið til tæplega 4,5 milljóna aðgerða í heildina. Þessi gífurlegi samstöðumáttur hefur nú þegar skipt sköpum. Okkur hafa borist nokkur gleðitíðindi vegna framfara í málum frá herferðinni í fyrra.
Síðan 28. apríl hafa þúsundir tekið þátt í mótmælum víðsvegar um Kólumbíu. Mótmælin byrjuðu vegna fyrirhugaðra skattalagabreytinga en hafa þróast í mótmæli vegna viðbragða stjórnvalda við efnahags- og félagslegum vandamálum í kjölfar kórónuveirufaraldursins. Stjórnvöld hafa brugðist við með hervaldi í nokkrum borgum þar sem mótmælendur eru beittir óhóflegu valdi með vopnum sem hefur leitt tugi einstaklinga til dauða og enn fleiri særða.
Þann 8. febrúar var Luis Alberto González López hótað og gert að yfirgefa heimili sitt í borginni Barrancabermeja innan 72 tíma. Að öðrum kosti yrði hann skotmark vopnaða hópsins ELN. Luis er varaforseti FEDEPESAN, náttúruverndarsamtaka á Magdalena Medio- svæðinu í miðhluta Kólumbíu. Frá því í september 2020 hafa vopnaðir hópar sent ógnandi skilaboð til meðlima samtakanna.
Þann 17. apríl heyrði Jani Silva sex byssuskot í um 30 metra fjarlægð frá heimili sínu í Puerto Asís í suðvesturhluta Kólumbíu. Fimm dögum síðar heyrði hún þrjú byssuskot, þá í um 50 metra fjarlægð frá heimili sínu. Þessi tvö atvik áttu sér stað eftir að frjálsu félagasamtökin Inter-Ecclesiastical Commission of Justice and Peace fengu upplýsingar um fyrirhugað morð á Jani í lok mars.
Í frumbyggjasamfélagi Bojayá Chocó í Vestur-Kólumbíu er 2.250 manns haldið í herkví af skæruliðahópnum Ejército de Liberación Nacional, ELN og herþjálfaða hópnum Autodefensas Gaitanistas de Colombia. Hóparnir neita frumbyggjunum um aðgang að mat og læknisaðstoð. Við krefjumst þess að kólumbísk yfirvöld setji fram alhliða áætlun til verndar réttindum Bojayá- samfélagsins.