Góðar fréttir
26. mars 2019Kvennaskólinn í Reykjavík og Framhaldsskólinn á Laugum eru Mannréttindaframhaldsskólar ársins 2018 og Háteigsskóli og Alþjóðaskólinn á Íslandi eru Mannréttindagrunnskólar ársins 2018.
Bréf til bjargar lífi 2018 heppnaðist einstaklega vel en að þessu sinni söfnuðust 76.341 undirskriftir á Íslandi til stuðnings þolendum mannréttindabrota víða um heim. Nú þegar hafa átt sér stað jákvæðar breytingar í tveimur málum sem tekin voru fyrir í nýlokinni herferð og sýnir það hve megnugur samtakamátturinn er.
Síðastliðin ár hefur keppnin Mannréttindaskóli ársins farið fram í framhaldsskólum landsins sem og keppni í félagsmiðstöðvum. Árið 2018 varð breyting á en í stað félagsmiðstöðvakeppni var haldin samkeppni meðal grunnskóla á landinu. Keppt er í tveimur flokkum á hvoru skólastigi. Annars vegar keppa skólarnir um að safna sem flestum undirskriftum á landsvísu og hins vegar um söfnun flestra undirskrifta miðað við nemendafjölda. Þar gefst því smærri skólunum tækifæri til að vinna til verðlauna.
Kvennó og Framhaldsskólinn á Laugum báru sigur úr býtum
Að þessu sinni bar Kvennaskólinn í Reykjavík sigur úr býtum sem Mannréttindaframhaldsskóli ársins en nemendur söfnuðu flestum undirskriftum, alls 2.804. Þá sigraði Framhaldsskólinn á Laugum í flokki flestra undirskrifta miðað við nemendafjölda en þar söfnuðu nemendur 420 undirskriftum.
Í ár tóku 25 framhaldsskólar á landinu þátt í átakinu og söfnuðu samtals 12.573 undirskriftum, 2.506 fleiri en árið 2017.
Mannréttindagrunnskóli ársins krýndur í fyrsta sinn
Þá tóku sjö grunnskólar á landinu þátt í fyrstu grunnskólakeppninni og vonumst við til að keppnin vaxi og dafni á næstu árum. Háteigsskóli fór með sigur af hólmi sem Mannréttindagrunnskóli ársins og safnaði 1.137 undirskriftum en nemendur skólans voru heldur betur kröftugir og gengu í hús og fyrirtæki í nágrenninu, kynntu málin og söfnuðu undirskriftum. Þá hlaut Alþjóðaskólinn á Íslandi viðurkenningu fyrir flestar undirskriftir miðað við nemendafjölda en skólinn safnaði 571 undirskrift. Að auki skrifuðu nemendur Alþjóðaskólans 61 bréf til stjórnvalda og stuðningskveðjur til þolenda.
Fjórir nýir farandgripir hannaðir
Síðustu ár hefur einungis einn farandverðlaunagripur, sem Steingrímur Eyfjörð hannaði á sínum tíma, verið veittur þeim framhaldsskóla sem safnaði flestum undirskriftum hverju sinni. Með breyttu landslagi keppninnar taldi Íslandsdeildin vera kominn tími til að endurnýja og var Björg Juto, vöruhönnuður og listakona, fengin til að hanna nýja farandverðlaunagripi. Gripirnir eru einstaklega fallegir og koma til með að taka sig vel út í vinningsskólunum næsta árið.
Herferðin Bréf til bjargar lífi
Bréf til bjargar lífi er stærsti árlegi viðburður Amnesty International en þá skrifar fjöldi fólks nafn sitt á bréf og kort til stjórnvalda sem brjóta mannréttindi og krefst réttlætis í þágu þolenda brotanna. Samtímis skrifa hundruð þúsunda einstaklinga víða um heim slík bréf en árið 2017 söfnuðust í heildina 6,6 milljónir undirskrifta um heim allan.
Bréfin bera árangur. Þau bjarga lífi, því þó stjórnvöld eigi auðvelt með að hunsa eitt bréf er erfitt að líta undan þegar milljónir slíkra bréfa berast alls staðar að úr heiminum. Á hverju ári verðum við líka vitni að raunverulegum breytingum í lífi þeirra sem beittir eru grófum órétti og við berjumst fyrir. Við höfum átt þátt í því að fjöldi samviskufanga hafa verið leystir úr haldi pyndarar hafa verið látnir svara til saka, fangar á dauðadeild verið náðaðir og ómannúðlegri löggjöf breytt.
Að þessu sinni var sjónum beint að tíu málum kvenna sem brotið hefur verið á og gafst fólki tækifæri til að skrifa undir aðgerðakort/bréf til stjórnvalda sem og skrifa stuðningskveðjur til kvennanna sjálfra. Málin voru ýmiss eðlis en öll snéru þau að konum sem hafa látið til sín taka í baráttunni fyrir betri heimi.
Lestu einnig
Þú ætlar að styðja og .
Skrifaðu undir og Amnesty á Íslandi sendir viðeigandi aðilum bréf í þínu nafni. Engar aðrar persónuupplýsingar en nafn þitt munu fylgja bréfinu á viðkomandi stjórnvöld.
Með því að skrifa undir málin samþykkir þú skilmála Íslandsdeildar Amnesty International um undirskriftir og persónuverndarstefnu