SMS
15. ágúst 2019Frumbyggjasamfélagið Tekoha Sauce í Paragvæ er enn og aftur á hættu að vera rekið af landsvæði forfeðra sinna vegna lögsóknar Itaipú Binational vatnsaflsvirkjunarinnar. Paragvæska stjórnarskráin og alþjóðlegir staðlar um mannréttindi vernda frumbyggjasamfélög frá því að vera rekin af landsvæðum forfeðra sinna án samráðs og fulls samþykkis
Skráðu þig í sms-aðgerðanetið hér! Sendu svo AKALL í númerið 1900 til að skrifa undir málið.
Á 8. áratugnum var frumbyggjasamfélagið rekið af landi sínu til að greiða leið fyrir vatnsaflvirkjunina.Frumbyggjarnir voru þá fluttir á svæði sem uppfylltu ekki kröfur um að vernda menningararfleifð og lífsviðurværi þeirra og hefur því verið brotið á réttindum þeirra samkvæmt lands- og alþjóðastöðlum.
Árið 2016 snéri frumbyggjasamfélagið aftur á hluta af svæði sem tilheyrir landsvæði forfeðra þeirra en er að mati fyrirtækisins nú eign virkjunarinnar.
Samfélagið hefur ítrekað beðið ríkið um skaðabætur en hefur lítið orðið ágengt. Samkvæmt 28. grein yfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna um réttindi frumbyggja felast skaðabætur í sér löglega samþykktar jarðir, landsvæði, auðlindir, fjárhæðir eða aðrar ráðstafanir.
Amanda Martínez, mannréttindasinni úr frumbyggja samfélaginu Tekohas Sauce, var hótað þann 8. ágúst 2018 af þremur vopnuðum einkennisklæddum mönnum frá virkjuninni. Í kjölfar ákalls Amnesty International gat hún lagt fram kvörtun og mál hennar rannsakað.
Í sama mánuði viðurkenndi INDI, stofnun á vegum stjórnvalda um málefni frumbyggja í Paragvæ, Cristóbal Martínez sem leiðtoga frumbyggjasamfélagsins. Það er mikilvægur áfangi fyrir samfélagið til að geta gert tilkall til lands forfeðra sinna fyrir dómstólum í Paragvæ.
Árið 2018 gaf Amnesty International út skýrslu þar er fjallað um vandamál sem fylgja brottrekstri í Paragvæ þar sem verndun frumbyggjasamfélaga í samræmi við alþjóðastaðla eru ekki höfð að leiðarljósi.
Amnesty krefst þess að forseti Paragvæ tryggi að frumbyggjasamfélagið Tekoha Sauce njóti verndar og verði ekki rekið af landsvæði forfeðra sinna.
Lestu einnig
Þú ætlar að styðja og .
Skrifaðu undir og Amnesty á Íslandi sendir viðeigandi aðilum bréf í þínu nafni. Engar aðrar persónuupplýsingar en nafn þitt munu fylgja bréfinu á viðkomandi stjórnvöld.
Með því að skrifa undir málin samþykkir þú skilmála Íslandsdeildar Amnesty International um undirskriftir og persónuverndarstefnu