SMS

17. maí 2022

Srí Lanka - Ákærið eða sleppið náms­mann­inum Mohamed Imran

Mohamed Imran var 20 ára þegar hann var hand­tekinn á grund­velli hryðju­verka­laga (PTA). Þremur árum síðar hefur hann enn ekki verið ákærður fyrir brot og engin sönn­un­ar­gögn verið lögð fram.  

Skráðu þig í sms-aðgerðanetið og fáðu þrjú mál send í sms-i á mánuði!

Mohamed Imran lærði hugbún­að­ar­verk­fræði, vann í búð og bjó í Kattankudy í Austur-héraði Srí Lanka. Hann fram­fleytti móður sinni og ömmu sem lést meðan Imran var í haldi. 

Samkvæmt upplýs­ingum frá varn­ar­mála­ráðu­neytinu er Imran í haldi m.a. vegna gruns um teng­ingu við ólög­legt athæfi og fyrir að vera vitorðs­maður árás­ar­manna á páskadag þann 21. apríl 2019. Engin haldbær sönn­un­ar­gögn hafa verið lögð fram. 

Árið 2017 vakti Ben Emmerson, þáver­andi sérstakur skýrslu­gjafi Sameinuðu Þjóð­anna fyrir mann­rétt­indi, athygli á sögu stjórn­valda í Srí Lanka um ákærur á hendur minni­hluta­hópa fyrir hryðju­verk. PTAhryðju­verka­lögin hafa leitt til grófra mann­rétt­inda­brota þar sem þeim hefur verið beitt til þögg­unar og gegn minni­hluta­hópum sem hafa m.a. sætt pynd­ingum og hand­tökum að geðþótta. 

Stjórn­völd í Srí Lanka ber skylda til að rann­saka og draga fyrir dóm einstak­linga sem grun­aðir eru um mann­rétt­inda­brot í sann­gjörnum rétt­ar­höldum en það þarf að vera gert í samræmi við alþjóð­lega staðla.  

Sms-félagar krefjast þess að Mohamed Imran verði leystur úr haldi strax!  

Lestu einnig