Góðar fréttir
11. október 2021Hópur fólks í tækniháskólanum METU í Ankara í Tyrklandi var sýknaður þann 8. október sl. fyrir þátttöku í gleðigöngu í háskólanum í maí 2019. Árið 2020 var málið hluti af árlegri herferð Amnesty International, Þitt nafn bjargar lífi. Um heim allan gripu 445.000 einstaklingar til aðgerða og kröfðust sýknunar. Amnesty International fagnar þessum sigri þótt málaferlin hefðu aldrei átt að eiga sér stað.
Árið 2019 tóku háskólayfirvöld METU þá ákvörðun að gleðigangan mætti ekki fara fram á háskólalóðinni. Meðlimir hinsegin samtaka háskólans skipulögðu þá friðsama mótmælaaðgerð. Háskólayfirvöld brugðust við með því að kalla á lögreglu sem beitti óhóflegu valdi og handtók mótmælendur, þar á meðal Melike og Özgur sem voru áberandi í starfi hinsegin samtaka háskólans. Í kjölfarið voru 18 nemendur og einn kennari ákærðir og áttu yfir höfði sér þriggja ára fangelsi þar til hópurinn var sýknaður.
„Fyrir rúmum tveimur árum mætti lögreglan með piparúða, harðar plastkúlur og táragas á friðsama gleðigöngu í Ankara þar sem mótmælendum var smalað saman og þeir dregnir fyrir rétt. Úrskurðurinn í dag er sigur fyrir réttlæti en þessi löngu málaferli hefðu aldrei átt að eiga sér stað. Í dag gefum okkur tíma til að fagna en á morgun höldum við áfram baráttunni fyrir mannréttindum sem eiga undir högg að sækja í Tyrklandi,“
Massimo Moratti, framkvæmdastjóri yfir Evrópudeild Amnesty eftir dómsúrskurðinn þann 8. október 2021.
Þitt nafn bjargar lífi 2021 fer að hefjast. Í ár verða vakin athygli á tíu málum líkt og áður, meðal annars verður beint sjónum að meðlimum hinsegin samtaka í Úkraínu sem hafa orðið fyrir aðkasti þar landi. Að auki eru níu einstaklingsmál og má þar nefna konu í Kína sem er í fangelsi fyrir fréttaumfjöllun um kórónuveiruna og lögfræðing sem situr í fangelsi fyrir mannréttindastörf í Egyptalandi.
Fylgstu og með og taktu þátt. Þinn stuðningur skiptir máli!
Fleiri góðar fréttir úr Þitt nafn bjargar lífi 2020.
Lestu einnig
Þú ætlar að styðja og .
Skrifaðu undir og Amnesty á Íslandi sendir viðeigandi aðilum bréf í þínu nafni. Engar aðrar persónuupplýsingar en nafn þitt munu fylgja bréfinu á viðkomandi stjórnvöld.
Með því að skrifa undir málin samþykkir þú skilmála Íslandsdeildar Amnesty International um undirskriftir og persónuverndarstefnu