Góðar fréttir
2. september 2021Nú er undirbúningur hafinn fyrir árlegu alþjóðlegu herferð Amnesty International, Þitt nafn bjargar lífi sem ýtt verður úr vör síðar á árinu. Árið 2020 söfnuðust fjöldi undirskrifta í herferðinni til stuðnings málum tíu þolenda mannréttindabrota. Á Íslandi söfnuðust 70.405 undirskriftir en á heimsvísu var gripið til tæplega 4,5 milljóna aðgerða í heildina. Þessi gífurlegi samstöðumáttur hefur nú þegar skipt sköpum. Okkur hafa borist nokkur gleðitíðindi vegna framfara í málum frá herferðinni í fyrra.
Við fögnum þessum sigrum og vonum að þátttakan í Þitt nafn bjargar lífi í ár verði ekki síðri til stuðnings öðrum einstaklingum og hópum sem sæta mannréttindabrotum og þurfa sárlega á hjálp almennings að halda. Þessar góðu fréttir eru til merkis um að undirskriftir til stjórnvalda sem brjóta gróflega á mannréttindum skila árangri.
Þriggja barna faðir frá Búrúndí mun brátt sameinast fjölskyldu sinni á ný
Í apríl 2018 var Germain Rukuki, starfsmaður frjálsra félagasamtaka og baráttumaður fyrir mannréttindum, fundinn sekur á grundvelli fjölda upploginna sakargifta og dæmdur í 32 ára fangelsi. Hann var fangelsaður áður en hann fékk tækifæri til að halda á yngsta barni sínu sem fæddist stuttu eftir að hann var handtekinn. Fjölskylda hans flúði Búrúndí af ótta við hefndarárásir. Germain fékk loks frelsi þann 30. júní 2021 og mun brátt sameinast fjölskyldu sinni á ný, þökk sé ríflega 400.000 einstaklingum sem gripu til aðgerða og kölluðu eftir lausn hans.
„Af öllu mínu hjarta þakka ég ykkur öllum sem hafa gripið til aðgerða og gert það að veruleika að Germain sameinist okkur á ný“, segir Emelyne Mupfasoni um lausn eiginmanns síns.
Framfaraskref fyrir réttlæti í Suður-Afríku
Vinkonurnar Popi Qwabe og Bongeka Phungula voru myrtar þegar þær fóru út á lífið í maí 2017. Þar til nýlega höfðu fjölskyldur þeirra haft áhyggjur af vanköntum og töfum á lögreglurannsókn í máli þeirra. Í mars 2021 var málið tekið upp á ný af lögreglunni í kjölfar þess að 341.106 undirskriftir bárust til stuðnings málinu frá fólki um heim allan. Lögreglan hefur lokið rannsókn sinni og sent málið áfram til skrifstofu ríkissaksóknara.
„Ég er bjartsýn. Mér finnst loksins eins og eitthvað muni breytast,“ segir Thembeihle, systir Popi.
Baráttukona laus úr haldi í Sádi-Arabíu
Nassima al-Sada, baráttukona fyrir frelsi kvenna, var handtekin og fangelsuð árið 2018 fyrir friðsama mannréttindabaráttu. Í fangelsinu var hún barin af fangelsivörðum og fékk engar heimsóknir, ekki einu sinni frá lögfræðingi sínum. Nassima var frjáls á ný í júní 2021, þökk sé stuðningi frá 777.611 einstaklingum víðs vegar að úr heiminum. Hún er nú komin í faðm fjölskyldu og vina á ný.
Til að fagna lausn hennar var vegglistaverki af Nassimu fyrir utan Kaffi Vest breytt í samræmi við lausn hennar en Stefán Óli gerði listaverkið í tengslum við herferðina á Íslandi í fyrra.
Baráttukona fyrir umhverfisvernd í Kólumbíu finnst hún öruggari
Gripið var til ríflega 460.0000 aðgerða til stuðnings máli baráttukonunnar Jani Silva sem hefur fengið líflátshótanir vegna baráttu sinnar fyrir umhverfisvernd á Amazonsvæðinu. Fyrr á þessu ári sagði hún Amnesty International: „Ég vil þakka Amnesty International þar sem herferðin var mjög góð. Ég er þakklát fyrir öll bréfin. Frá mínum dýpstu hjartarrótum, þökk sé herferðinni þá er ég á lífi og var ekki drepin vegna þess að þeir vissu af ykkur.“
Listamaður laus úr haldi í Myanmar
Þrír meðlimir úr leikhópnum, Peacock Generation, sem helgar sig sérstöku gjörningalistformi sem kallast Thangyat voru í hópi 23.000 fanga í Myanmar sem fengu almenna sakaruppgjöf þann 17. apríl 2021. Paing Phyo Min var einn þremenninganna sem var handtekinn í apríl 2019 og dæmdur í sex ára fangelsi vegna gjörnings leikhópsins þar sem her landsins var gagnrýndur.
Lestu einnig
Þú ætlar að styðja og .
Skrifaðu undir og Amnesty á Íslandi sendir viðeigandi aðilum bréf í þínu nafni. Engar aðrar persónuupplýsingar en nafn þitt munu fylgja bréfinu á viðkomandi stjórnvöld.
Með því að skrifa undir málin samþykkir þú skilmála Íslandsdeildar Amnesty International um undirskriftir og persónuverndarstefnu