Túnis: Baráttukona fyrir kvennréttindum sætir tilhæfulausum ákærum

Saloua Ghrissa, frönsk-túnísk baráttukona fyrir mannréttindum og framkvæmdastýra samtaka um eflingu réttar til fjölbreytileika (e. The Association for the Promotion of the Right to Difference (ADD)) á yfir höfði sér sakamál auk sjö annarra starfsmanna og meðlima samtakanna.

Öll átta eru sótt til saka á grundvelli tilhæfulausra ákæra sem rekja má til mannréttindastarfs þeirra.

Túnísk stjórnvöld samþykktu beiðni Saloua Ghrissa um lausn úr gæsluvarðhaldi eftir að hún hafði setið í varðhaldi að geðþótta í rúma 15 mánuði. Hún var handtekin í desember 2024 í tengslum við víðtækari aðgerðir stjórnvalda gegn borgaralegu samfélagi.

SMS-félagar krefjast þess að ákærur á hendur Salou Ghrissa og hinna sjö verði felldar niður.