SMS

22. maí 2025

Túnis: Mann­rétt­inda­fröm­uðir í varð­haldi 

Þrír mann­rétt­inda­fröm­uðir í Túnis voru hand­teknir að geðþótta af yfir­völdum í maí 2024, Sherifa Riahi, þá í fæðing­ar­or­lofi, Yadh Bous­selmi og Mohamed Joo, fyrrum og starf­andi starfs­fólk samtak­anna Terre D’asile Tunisie sem aðstoða farand- og flótta­fólk. Nokkrum dögum síðar var Imen Ouar­dani, fyrrum embætt­is­kona sem var í samstarfi við samtökin, einnig hand­tekin. Allir þessir einstak­lingar eru enn í gæslu­varð­haldi að geðþótta. 

Orðræða sem einkennist af útlend­inga­h­atri og kynþátta­for­dómum, meðal annars frá forseta landsins, hefur kynt undir það að yfir­völd herji á einstak­linga og samtök sem styðja farand- og flótta­fólk.  

Yfir­völd hafa sett hömlur á heim­sóknir barna Sherifa Riahi. Oftast fara heim­sóknir fram þar sem gler­veggur aðskilur ungu börnin frá móður sinni og erfitt hefur verið að fá leyfi fyrir heim­sóknum án gler­veggs. Sherifa Riahi fær því sjaldnast að vera í snert­ingu við börn sín þegar þau koma í heim­sókn til hennar. Samkvæmt Bangkok-regl­unum um meðferð kven­fanga skal hlúa að sambandi barna við foreldri í fang­elsi og skulu heim­sóknir barna fara fram í umhverfi sem stuðlar að jákvæðri upplifun þeirra. 

SMS-félagar kalla eftir því að yfir­völd leysi Sherifa Riahi, Yadh Bous­selmi, Mohamed Joo, og Imen Ouar­dani úr haldi og felli niður allar ákærur á hendur þeim. Yfir­völd verða einnig að svara beiðni Sherifa Riahi um heim­sóknir barna sinna á meðan hún er enn í haldi. 

Lestu einnig