SMS

29. nóvember 2024

Venesúela: Stöðva þarf ofsóknir gegn félaga­sam­tökum

Frá því í nóvember í ár hafa yfir­völd í Venesúela hert árásir sínar gegn PROVEA, frjálsum félaga­sam­tökum sem verja mann­rétt­indi þar í landi.

Lögreglan  boðaði Oscar Murillo, fram­kvæmda­stjóra samtak­anna, á fund til gefa vitn­is­burðí máli er varðar meint brot á umdeildum lögum gegn hatri (e. anti-hatred laws). Nokkrum vikum áður hafði hátt­settur embætt­is­maður hótað samtök­unum í sjón­varpinu. 

SMS-félagar Amnesty krefjast þess yfir­völd í Venesúela láti af öllum árásum og hótunum gegn PROVEA, meðlimum þess og öðrum félaga­sam­tökum sem krefjast rétt­lætis og ábyrgðar í Venesúela.

Skráðu þig í SMS-aðgerðanetið hér.

Lestu einnig