Síur í notkun

4 niðurstöður

  • Grikkland: verndum flóttafólk í Moria

    Eldarnir sem komu upp í flóttamannabúðum í Moria hafa gert aðstæður verri fyrir þúsundir flóttafólks sem nú hafa lélegt aðgengi að vatni, mat og heilbrigðisþjónustu. Margir hafa misst eigur sínar, meðal annars mikilvæg skjöl er varða umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd. Eldra fólk, fólk í viðkvæmum hópum, börn, óléttar konur og fleiri eru meðal þeirra sem nauðsynlega vantar hjálp.

  • Grikkland: Verndum flóttafólk gegn COVID-19

    Á meðan heimurinn tekst á við COVID-19 heimsfaraldurinn eykst áhættan fyrir flóttafólk í Grikklandi með hverjum klukkutímanum sem líður. Þúsundir eldra fólks, fólk með undirliggjandi sjúkdóma, óléttar konur og fleiri eru föst í flóttamannabúðum og búa við hættulegar aðstæður. Nú stendur þeim einnig ógn af faraldrinum en afleiðingarnar geta orðið skelfilegar fyrir þá sem þar dvelja.

  • Grikkland: Börn á flótta fái aðgang að heilbrigðisþjónustu

    Síðan í júlí 2019 hefur umsækjendum um alþjóðlega vernd og börnum óskráðs flóttafólks verið meinaður aðgangur að opinberri heilbrigðisþjónustu í Grikklandi. Ný lög um alþjóðlega vernd sem kynnt voru í nóvember síðastliðnum hafa komið einhvers konar reglu á málið en skortur á aðgerðaáætlun veldur því að líf og heilsa þúsunda barna og fullorðinna er í hættu.