HM: Tryggja þarf að mótið sé fögnuður fyrir alla aðila
Yfirvöld í löndunum sem halda mótið, í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada, hafa herjað á innflytjendur, sett takmarkanir á mótmæli og ýtt jaðarhópum til hliðar.
Yfirvöld í löndunum sem halda mótið, í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada, hafa herjað á innflytjendur, sett takmarkanir á mótmæli og ýtt jaðarhópum til hliðar.
Milljónir fótboltaaðdáenda munu mæta á heimsmeistaramót í knattspyrnu karla 2026 á vegum Alþjóðaknattspyrnusambandsins FIFA í Kanada, Mexíkó og Bandaríkjunum. Hætta er á að þeir sæti mannréttindabrotum, sérstaklega í ljósi ofbeldisfullrar og banvænnar innflytjendastefnu Bandaríkjanna. Amnesty International varar við því að strangar takmarkanir á tjáningarfrelsinu og friðsamlegum mótmælum geti staðið í vegi fyrir því að mótið verði „öruggt, opið og inngildandi” líkt og FIFA hefur lofað