HM: Tryggja þarf að mótið sé fögnuður fyrir alla aðila

Koma þarf í veg fyrir árásir á réttindi og frelsi á heimsmeistaramótinu í fótbolta sem hefst um miðjan júní. Tryggja þarf að HM sé fögnuður fyrir alla aðila. 

Yfirvöld í löndunum sem halda mótið, í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada, hafa herjað á innflytjendur, sett takmarkanir á mótmæli og ýtt jaðarhópum til hliðar.

  • Í Bandaríkjunum árið 2025 vísaði ríkisstjórn Trumps hálfri milljón úr landi, rúmlega sexfalt meira en fjöldi þeirra sem munu mæta á leikvanga heimsmeistaramótsins. Fulltrúar innflytjendayfirvalda hafa jafnvel drepið fólk.
  • Í Mexíkó hefur herinn verið settur í viðbragðsstöðu sem setur friðsamlega mótmælendur í hættu.
  • Í Kanada hefur heimilislaust fólk sætt frekari jaðarsetningu.
  • Í öllum þremur löndunum er hætta á að hinsegin fótboltaaðdáendur sæti mismunun, ofbeldi og áreitni.

SMS-félagar kalla eftir því að forseti FIFA, Gianni Infantino, og yfirvöld í löndunum sem halda mótið leyfi friðsamleg mótmæli, bindi enda á fjöldahandtökur og brottvísanir og verndi fólk gegn mismunun.