Þingmenn víða um heim hvetja SÞ til að styðja við vopnaviðskiptasáttmála
Þann 20. október 2008 var Sameinuðu þjóðunum afhentur listi með kröfu 2.000 þingmanna frá 124 löndum, þar á meðal 25% þingmanna Alþingis Íslendinga, um að hleypt yrði lífi í viðræður um áhrifaríkan vopnaviðskiptasamning til að bjarga mannslífum og koma í veg fyrir gróf mannréttindabrot og upplausn samfélaga.

