Grikkland: Harmleikur farandfólks við Farmakonisi – ári síðar hefur réttlætinu ekki verið fullnægt
Það að grísk yfirvöld hafi brugðist þeirri skyldu sinni að rannsaka dauða 11 Afgana sem drukknuðu úti á sjó sýnir skeytingarleysi yfirvalda um að framfylgja réttlæti fyrir fórnarlömb og fjölskyldur þeirra og er dæmi um harðlínustefnu í málefnum hælisleitenda og farandfólks, sagði Amnesty International í tilefni þess að ár sé liðið frá harmleiknum í Farmakonisi.
