Aðgerðasinnarnir Larry Emmanuel og Victor Anene Udoka mótmæltu spillingu og bágri stöðu mannréttinda í Nígeríu þann 5. apríl síðastliðinn, ásamt því dreifa plakötum sem talin voru gagnrýna forsetann. Ónafngreindir menn réðust að þeim og pynduðu á mótmælunum. Larry og Victor hafa verið í ólögmætu varðhaldi síðan.
Nokkrum dögum eftir mótmælin voru þeir færðir í fangelsi sem er staðsett í fylkinu Kogi í Norðurhluta-Nígeríu. Aðgerðasinnarnir tveir eru í haldi fyrir það eitt að nýta tjáningarfrelsi sitt og rétt sinn til að mótmæla með friðsömum hætti.
Skrifaðu undir og krefstu þess að Larry Emmanuel og Victor Anene Udoka verði tafarlaust látnir lausir án skilyrða.
Til að kynna sér nánar stöðu tjáningarfrelsis í Nígeríu má lesa um hana hér.