Yfirlýsing

6. júní 2025

Banda­ríkin: Beiting neit­un­ar­valdsins er skamm­arleg og ómann­úðleg í ljósi hópmorðs Ísraels

Banda­rísk stjórn­völd beittu neit­un­ar­valdi í örygg­is­ráði Sameinuðu þjóð­anna þann 4. júní gegn ályktun þar sem krafist er tafar­lauss vopna­hlés á Gaza, lausnar gísla og tafar­lausrar og skil­yrð­is­lausrar aflétt­ingar allra takmarkana á mann­úð­ar­að­stoð.

Agnès Callamard aðal­fram­kvæmda­stjóri Amnesty Internati­onal hefur þetta um málið að segja:

„Þessi skamm­ar­lega beiting neit­un­ar­valds Banda­ríkj­anna, sú nýjasta og ein af mörgum, gefur Ísrael grænt ljós á að halda áfram að fremja hópmorð á Palestínu­búum á Gaza. Þar með er Ísrael leyft að halda áfram að svelta palestínska borgara og skapa lífs­skil­yrði sem leiða til eyðingar þeirra.“ 

„Banda­ríkin hafa sóað enn einu mikil­vægu tæki­færi til að krefjast þess að Ísrael bindi enda á blóðsút­hell­ingar óbreyttra borgara. Hvernig er hægt að rétt­læta að komið sé í veg fyrir aðgerðir örygg­is­ráðs Sameinuðu þjóð­anna sem gætu stuðlað að því að binda enda á hræði­lega hung­urs­neyð og þján­ingar, leysa gísla úr haldi og aflétta kæfandi takmörk­unum Ísraels á mann­úð­ar­að­stoð?“  

„Líf rúmlega tveggja milljóna Palestínubúa er í húfi: Ungbörn og börn eru lögð inn á sjúkrahús vegna vannær­ingar, tugþús­undir barna fara að sofa svöng, fjöl­skyldur eru án aðgangs að hveiti í margar vikur, mæður eru of vannærðar til að geta gefið börnum sínum brjóst, særðir óbreyttir borg­arar eru sviptir lífs­nauð­syn­legum sjúkra­vörum og sveltir og horaðir feður ganga í marga klukku­tíma við ómann­úð­legar aðstæður til að sækja matarpakka án þess að vita hvort þeir snúi aftur heim til barna sinna. 

„Samkvæmt alþjóða­lögum ber Ísrael sem hernám­sveldi skýra skyldu til að tryggja að íbúar undir hernámi hafi full­nægj­andi aðgang að mat, lyfjum og öðrum lífs­nauð­syn­legum birgðum. Ísrael hefur ítrekað neitað að uppfylla þessar skyldur. Öllum ríkjum, þar á meðal Banda­ríkj­unum, ber skylda til að hindra að hópmorð eigi sér stað, vinna saman að því að binda enda á það og draga gerendur til ábyrgðar.“  

„Samtökin Gaza Humanit­arian foundation, stutt af Banda­ríkj­unum, sjá um fram­kvæmd á nýlegu og hern­að­ar­legu mann­úð­ar­að­stoð­ar­kerfi Ísraels. Þetta er ekki svarið, þar sem það stangast á við megin­reglur um mannúð og alþjóðalög. Hætta stafar af þessu kerfi auk þess sem að árang­urs­leysi og algjör spilling þess varð ljós þegar tugir Palestínubúa, margir hverjir eina fyrir­vinna  fjöl­skyldu sinnar, létust eða særðust þegar þeir reyndu að sækja  mat. Ekkert en annað aflétting á öllum takmörk­unum á mann­úð­ar­að­stoð mun duga. 

„Banda­ríkin geta og verða að leggja sitt af mörkum til að binda enda á þessa mann­gerðu þján­ingar sem þau hafa sjálf stuðlað að. Þau verða án tafar að stöðva vopna­flutn­inga og hern­að­ar­að­stoð, þrýsta á Ísrael að aflétta öllum takmörk­unum á aðstoð og kalla eftir tafar­lausu vopnahlé allra aðila. Líf 2,2 milljóna Palestínubúa á Gaza liggur við“ 

Lestu einnig