Skýrslur

26. júní 2019

Dómin­íska Lýðveldið: Vænd­is­fólk berst gegn pynd­ingum og annarri illri meðferð af völdum lögregl­unnar

Á alþjóð­legum degi til stuðn­ings þolendum pynd­inga, þann 26. júní, vekur Amnesty Internati­onal athygli á máli vænd­is­fólks í Dómin­íska lýðveldinu sem þurfa að þola pynd­ingar af hálfu lögreglu. Amnesty Internati­onal gaf út skýrslu fyrr á þessu ári þar sem skráðar voru sögur 46 vændis­k­venna, þeirra á meðal trans kvenna.

Skýrslan sýnir að vænd­is­konur í Dómin­íska lýðveldinu séu algeng skot­mörk lögregl­unnar sem beita þær pynd­ingum og annarri illri meðferð af kynferð­is­legum toga. Amnesty Internati­onal þakkar þeim hugrökku konum sem miðluðu sögum sínum og vonar að athygli að málum þeirra styðji við baráttu þeirra fyrir að fá að lifa með reisn, að þær njóti rétt­lætis og verndar.

„Þeir voru þrír. Ég var úti á götu­horni að bíða eftir viðskipta­vinum.og þeir misnotuðu mig. Þeir drógu mig inní lögreglubíl. Þeir sáu að enginn var í augsýn. Þeir byrjuðu að káfa á mér, taka mig úr fötunum. Þeir rifu blússuna mína. Hver á fætur öðrum. „Ég er fyrstur“ sagði einn á meðan hinir biðu eftir að komast að. Síðan hófust misþyrm­ingar og ég var neydd til að gera hluti sem ég vildi ekki gera.“

Vænd­is­kona sem eitt kvöldið var hópnauðgað af lögregl­unni í Santó Dómingó.

 

 

Vitn­is­burð­urinn er til marks um þann raun­veru­leika sem vænd­is­konur búa við þar sem lögreglan nauðgar, pyndar og niður­lægir þær ítrekað í „refs­ing­ar­skyni“ fyrir að fylgja ekki hefð­bundnum samfé­lags­legum hugmyndum um kven­leika og kynhneigð og misnotar þar með vald sitt.

„Ég var hrædd. Ég var ein. Ég gat ekki varið mig. Ég varð að leyfa þeim að fá sínu fram­gengt. Þeir hótuðu að drepa mig ef ég gerði það ekki.“

Ef aðeins er litið til ársins 2017 í Dómin­íska lýðveldinu voru 6.300 tilkynn­ingar um kynferð­is­brot, þar af 1.290 nauðg­anir. Árið 2018 voru í það minnsta 100 konur myrtar vegna kyns síns (e. femicide).

Karlrembu­menning innan lögregl­unnar, ofan á mikla félags­lega útskúfun og mismunun gagn­vart vænd­is­fólki, hefur þau áhrif að lögreglan misnotar vald sitt með ólög­mætum hætti. Lögregl­unni er sjaldan refsað. Fáar vænd­is­konur kæra glæpi til lögregl­unnar þar sem þær óttast að þeim verði refsað eða þær niður­lægðar. Þær sem tilkynna um að brotið hafi verið gegn sér eru sjaldan teknar alvar­lega.

„Ef þú ert í vændi, þá lítur lögreglan á þig sem konu af „verstu sort“. Þeir toga í hárið þitt, slá þig og hrinda þér. Þeir fara með okkur eins og hunda. Þeir kalla okkur „skít­ugar hórur“, það þykir eðli­legt.“

Image result for amnesty dominican republic sex-work

„Þeir voru á vakt, drógu mig út í horn og sögðu mér að ef ég gerði ekki það sem þeir báðu um myndu þeir drepa mig og skilja mig þar eftir.“

Camilla, ung vænd­is­kona sem var neydd til munn­maka af lögreglu­þjónum í Punta Cana.

Mann­rétt­inda­sinnar

Sumar vænd­is­konur eru einnig baráttu­konur fyrir mann­rétt­indum í Dómin­íska lýðveldinu þar sem þær berjast fyrir rétt­indum sínum. Þær eru þó oft útilok­aðar frá mann­rétt­inda- og kven­rétt­inda­hreyf­ingum vegna þess að þær eru í vændi.

„Ofbeldi í landinu beinist einna helst að konum, ef við kærum mann sem misþyrmir okkur þá er ekkert gert. Hann gæti þess vegna drepið okkur. Þetta þarf að breytast. Ofbeldi gegn konum og vænd­is­fólki á ekki að viðgangast.“

Jaðar­hópar

Vænd­is­konur sem tilheyra fleiri en einum jaðar­hópi, eins og trans konur eða konur af afrískum uppruna, sæta sérstak­lega illri meðferð ef þær fylgja ekki hefð­bundnum samfé­lags­venjum.

Trans vænd­is­konur greindu meðal annars frá fjöl­mörgum dæmum um að lögreglan fjar­lægi og brenni hárkollur þeirra í þeim tilgangi að niður­lægja þær. Einnig eru dæmi um að þær hafi verið neyddar til að þrífa saurug fang­elsiskló­sett.

„Þeir sögðu að ég væri maður, „helvítis hommi, hommi frá helvíti“. Með klám­fengum orðum sögðu þeir: „Horfðu á þessi brjóst úr svömpum, taktu af henni hárið, taktu af henni þessi föt sem hún er í yfir brjóstin.“ Þeir girtu niður mig buxurnar til að skoða hvort ég væri með kven­sköp eða getn­að­arlim.“

Trans kona sem lýsir samskiptum sínum við lögregluna í Dómin­íska lýðveldinu.

Hvað er hægt að gera?

Til að tryggja það að vænd­is­konur njóti mann­rétt­inda þurfa stjórn­völd í Dómin­íska lýðveldinu að:

  • Skil­greina nauðg­anir lögreglu­manna sem pynd­ingar og tryggja að þeir verði dregnir til ábyrgðar
  • Samþykkja lög um bann við mismunun og innleiða aðrar aðgerðir til að vernda og stuðla að rétt­indum jaðar­settra hópa.

Hægt er að styðja við þetta mál með því að skrifa undir netákall Íslands­deildar Amnesty Internati­onal. Við hvetjum sem flesta til að skrifa undir og krefja stjórn­völd í Dómin­íska lýðveldinu að tryggja að vænd­is­fólk njóti mann­rétt­inda.

Lestu einnig