SMS
26. janúar 2026
Marwa Arafa, mannréttindafrömuður og þýðandi, hefur verið í haldi að geðþótta í tæplega sex ár vegna aðgerðastarfa , þar á meðal stuðning við ættingja fanga.
Æðsti saksóknari Egyptalands vísaði máli hennar til sakamáladómstólsins í Kaíró í desember 2024. Ákærur á hendur henni um að ganga til liðs við og fjármagna hryðjuverkasamtök eru upplognar.
Öryggissveitir handtóku Marwa þann 20.apríl 2020 á heimili hennar án þess að framvísa handtökuskipan og létu hana í kjölfarið sæta þvinguðu mannshvarfi í 14 daga. Marwa Arafa var handtekin fyrir framan tveggja ára dóttur sína, sem var mikið áfall fyrir barnið.
Heilsu Marwa Arafa hefur hrakað verulega í fangelsi. Þrátt fyrir það neita yfirvöld henni um nauðsynlega heilbrigðisþjónustu.
SMS-félagar krefjast þess að egypsk yfirvöld leysi Marwa Arafa tafarlaust og skilyrðislaust úr haldi og felli niður allar ákærur gegn henni þar sem hún er eingöngu í haldi fyrir að nýta mannréttindi sín.
Lestu einnig
Þú ætlar að styðja og .
Skrifaðu undir og Amnesty á Íslandi sendir viðeigandi aðilum bréf í þínu nafni. Engar aðrar persónuupplýsingar en nafn þitt munu fylgja bréfinu á viðkomandi stjórnvöld.
Með því að skrifa undir málin samþykkir þú skilmála Íslandsdeildar Amnesty International um undirskriftir og persónuverndarstefnu