SMS
26. júlí 2021Þúsundir komu saman þann 11. júlí á Kúbu til að mótmæla ríkisstjórninni vegna efnahagsástandsins, skorts á lyfjum, og almennra takmarkana á tjáningarfrelsinu. Mögulega eru hundruð mótmælenda í fangelsi og ríkið þaggar niður í gagnrýnisröddum með fjölda ákæra. Krefjumst þess að friðsamir mótmælendur verði leystir umsvifalaust úr haldi án skilyrða.
Amnesty International hefur talað við fjölda ættingja þeirra sem eru í haldi vegna mótmælanna. Þeir segja að yfirvöld hafi ekki gefið upplýsingar um hvar ættingjar þeirra séu í haldi.
Að virða og vernda grundvallaréttindi fanga, eins og samskipti við umheiminn og heimsóknir fjölskyldu, er mikilvægt til að koma í veg fyrir að þeir sæti alvarlegum mannréttindabrotum eins og pyndingum.
Taktu þátt í starfi Amnesty og skráðu þig í sms-aðgerðanetið hér!
Yfirvöld á Kúbu hafa lengi notað ákveðin ákvæði í hegningarlögum (t.d. fyrirlitningu í garð opinbers starfsfólks, andspyrnu við opinbert embættisfólk og óspektir á almannafæri) til að grafa undan tjáningarfrelsinu og refsa þeim sem gagnrýna ríkisstjórnina. Einnig takmörkuðu stjórnvöld aðgengi að Facebook, Instagram og WhatsApp í landinu sem gerði samskipti erfið.
SMS-félagar krefjast þess að friðsamir mótmælendur verði leystir umsvifalaust úr haldi án skilyrða.
Lestu einnig
Þú ætlar að styðja og .
Skrifaðu undir og Amnesty á Íslandi sendir viðeigandi aðilum bréf í þínu nafni. Engar aðrar persónuupplýsingar en nafn þitt munu fylgja bréfinu á viðkomandi stjórnvöld.
Með því að skrifa undir málin samþykkir þú skilmála Íslandsdeildar Amnesty International um undirskriftir og persónuverndarstefnu