Á innan við tíu mínútum réðst Ísrael á hundrað staði í Líbanon þar sem hundruð létu lífið og særðust. Árásirnar áttu sér stað 8. apríl sem var mannskæðasti dagurinn í síðustu lotu árása sem hófst 2. mars. Gerðar voru linnulausar loftárásir í suðurhluta Líbanon, í Beqaa-dalnum og á fjölmennum svæðum í Beirút, án nokkurrar viðvörunar. Sjúkrahús sendu frá sér neyðarkall til að óska eftir blóðgjöfum vegna gífurlegs fjölda særðra. Aðeins örfáum klukkustundum eftir að heimurinn fagnaði af varfærni fréttum af vopnahléi Bandaríkjanna og Ísrael við Íran varð staða óbreyttra borgara í Líbanon enn skelfilegri.
Áður en árásirnar hófust, hernaðaraðgerð sem ísraelski herinn hefur kallað „eilíft myrkur“, höfðu meira en 1.500 einstaklingar verið drepnir og rúmlega milljón þurft að flýja heimili sín í landinu. Óbreyttir borgarar í Líbanon hafa liðið óbærilegar þjáningar og eru börn, heilbrigðisstarfsfólk og fjölmiðlafólk á meðal hinna látnu. Í þessum nýjustu árásum mun mannfall aðeins aukast.
„Ég greip fartölvuna mína og æddi út á götu. Þetta var eins og heimsendir. Lík lágu á jörðinni. Blóð út um allt. Ég sá ótalmarga særða, bæði fullorðna og börn. Ég gekk lengra en sama sjón blasti við í öðrum hverfum líka. Ég vissi ekki hvert ég átti að fara. Ég gekk bara stefnulaust áfram til að komast eins langt í burtu og hægt var. Þetta var martröð.“
Fatima, vitni í Líbanon.
Ísraelskum hersveitum ber skylda, samkvæmt alþjóðlegum mannúðarlögum, að gera allar þær varúðarráðstafanir sem völ er á til að aðgreina óbreytta borgara frá hernaðarlegum skotmörkum. Auk þess ber þeim að forðast með öllu beinar árásir á óbreytta borgara og borgaralegar eignir, árásir sem valda óhóflegum skaða og handahófskenndar árásir. Lágmarka þarf skaða á óbreyttum borgurum og borgaralegum eignum. Það felur meðal annars í sér að forðast notkun sprengivopna, sem valda miklum skaða, á þéttbyggð íbúðarhverfi. Sé þessum skyldum ekki framfylgt telst það alvarlegt brot á alþjóðalögum og stofnar lífi óbreyttra borgara í bráða hættu.
Kröfur Amnesty International
Amnesty International ítrekar brýna nauðsyn þess að Ísrael framfylgi skyldum sínum í samræmi við alþjóðleg mannúðarlög og tryggi vernd óbreyttra borgara. Ísraelsríki á sér skelfilega sögu um ólögmætar árásir í Líbanon og hefur sýnt að það skeytir engu um líf óbreyttra borgara í skjóli refsileysis sem ísraelskt embættisfólk telur sig njóta. Þessar árásir eru áminning um að ríki verða að stöðva vopnaflutninga til Ísraels í ljósi mikillar hættu á að þau verði notuð til að fremja alvarleg brot á alþjóðlegum mannúðarlögum.


