Síur í notkun

3 niðurstöður

Raða eftir
  • Líbanon: Vernda þarf óbreytta borgara vegna árása Ísraels

    Á innan við tíu mínútum réðst Ísrael á hundrað staði í Líbanon þar sem hundruð létu lífið og særðust. Árásirnar áttu sér stað 8. apríl sem var mannskæðasti dagurinn í síðustu lotu árása sem hófst 2. mars. Gerðar voru linnulausar loftárásir í suðurhluta Líbanon, í Beqaa-dalnum og á fjölmennum svæðum í Beirút, án nokkurrar viðvörunar. Sjúkrahús sendu frá sér neyðarkall til að óska eftir blóðgjöfum vegna gífurlegs fjölda særðra. Aðeins örfáum klukkustundum eftir að heimurinn fagnaði af varfærni fréttum af vopnahléi Bandaríkjanna og Ísrael við Íran varð staða óbreyttra borgara í Líbanon enn skelfilegri.

  • Líbanon: Eyðilegging af völdum Ísraelshers

    Amnesty International rannsakaði áhrif landárása Ísraels á 24 bæjarfélög í Líbanon frá 1. október 2024 til 26. janúar 2025. Rannsóknin sýndi að 10.000 borgaraleg mannvirki voru eyðilögð eða urðu fyrir miklum skemmdum á innan við fjórum mánuðum, þar á meðal heimili, moskur, grafreitir, almenningsgarðar og landbúnaðarland.  Í sumum þorpum urðu rúmlega 70% allra bygginga fyrir skemmdum eða eyðilögðust.