Góðar fréttir

24. júlí 2014

Síerra Leóne: Samfélög snúa baki við limlest­ingum á kynfærum kvenna

Samfélög í Síerra Leóne beita nýstár­legri nálgun við að binda enda á þá grimmi­legu hefð sem lims­lesting á kynfærum kvenna er.

Nokkrir tugir kvenna komu saman í ríki Masung­bala í norð­vest­ur­hluta Síerra Leóne til að deila upplifun sinni af sárs­auka og hryll­ingi á meðan karl­kyns leið­togar samfé­lagsins miðluðu eigin skoð­unum í öðrum hópi. Konurnar lýstu, hver á eftir annarri, hvernig kynfæri þeirra voru skorin af sem hluti af mann­dómsvígslu og þeim sárs­auka sem þær neyddust til að þola.

Flestar þeirra sögðu að þær sæju eftir því að hafa stutt slíkar aðgerðir og væru stað­ráðnar í að dætur þeirra þyrftu ekki að ganga í gengum það sama. Skammt frá sátu karl­menn­irnir og ræddu hvernig samfé­lagið gæti tekið á þessu vanda­máli.

 

Jákvæð niður­staða

Síðan gerðist það sem enginn átti von á. Eftir margra daga umræður og samn­inga­við­ræður á vinnu­smiðjum Amnesty Internati­onal og annarra svæð­is­bund­inna samtaka í ágúst 2011, skrifaði samfé­lagið undir samkomulag þess efnis að banna limlest­ingu á kynfærum kvenna undir 18 ára aldri. Í samkomu­laginu kemur einnig fram að hver einasta kona eldri en 18 ára verði að veita samþykki sitt áður en aðgerðin fer fram. Um það bil 600 konum var bjargað frá limlest­ingu í ríki Masung­bala á innan við mánuði eftir undir­ritun samkomu­lagsins.

 

 

Reynslan af vinnu­smiðj­unum var svo jákvæð að aðgerða­sinnar á svæðinu sögðu hundruð samfé­laga um allt land hafi fylgt í kjöl­farið og bannað þessa skað­legu hefð. Þrátt fyrir að lög um rétt­indi barnsins frá árinu 2007 verndi börn frá skað­legum athöfnum, þá er engin löggjöf í Síerra Leóne sem bannar sérstak­lega limlest­ingu á kynfærum kvenna, en þessi samfélög eru góð dæmi um þá mögu­leika sem eru fyrir hendi, sagði Aminatou Sar, mann­rétt­inda­fræðslu­stjóri Afríku­deildar Amnesty Internati­onal.

Þögnin rofin

„Síerra Leóne gæti orðið ríki sem umber ekki kynfæralim­lest­ingar“, segir Arun Turay, hjá félaga­sam­tök­unum Advocacy Movement Network (AMNET). Ásamt Amnesty Internati­onal, héldu samtökin úti vinnu­smiðjum til að vekja tiltekin samfélög til vitundar og hvetja þau til að grípa til aðgerða gegn kynfæralim­lest­ingu kvenna.

Verk­efnið er hluti af mann­rétt­inda­fræðslu­verk­efni Afríku­deildar Amnesty Internati­onal sem nú er haldið úti í sjö samfé­lögum í Kambia-umdæminu í Síerra Leóne. Í brenni­depli eru mann­rétt­indamál sem snerta samfé­lögin á svæðinu, þar á meðal kynfæralim­lesting kvenna.

„Það er mjög erfitt fyrir fólk að ræða þessi mál en þar sem að sterk hefð fyrir samfé­lags­legum umræðum ríkir í þessum samfé­lögum höfum við leitað til þegna þeirra til að ræða um þær hættur sem fylgja kynfæralim­lest­ingu kvenna“, útskýrir Arun.

„Það kom fljótt í ljós að fólk vildi takast á við vanda­málið en vissi ekki hvernig það ætti að fara að því. Þetta ferli hefur nú þegar breytt lífi fjöl­margra kvenna og stúlkna.“

Arun er enn í reglu­legu sambandi við þessi samfélög

„Fyrir aðeins nokkrum mánuðum sögðu leið­tog­arnir mér að breyt­ingin á þessari hefð hafi nú verið viður­kennd til fulls og að áhersla sé nú lögð á menntun stúlkna. Samkomu­lagið virkar vegna þess að flestir innan samfé­lagsins telja sig skuld­bundna því, þar sem þeir tóku þátt í þeim umræðum sem vinnu­smiðjan hrundi af stað.“

140 millj­ónir kvenna og stúlkna

Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­unin áætlar að allt að 140 millj­ónir kvenna og stúlkna um allan heim hafi sætt kynfæralim­lest­ingu. Aðgerðin getur verið fram­kvæmd á hvaða aldri sem er, allt frá því skömmu eftir fæðingu og þar til konan hefur náð fullum þroska.

Konur og stúlkur sem hafa lent í því að öll ytri kynfæri séu fjar­lægð þjást oftar en ekki af miklum sárs­auka, blæð­ingum, losti, erfið­leikum við þvaglát og sýkingum sem geta jafnvel leitt til dauða.

Margar þeirra þjást einnig af þrálátum sárs­auka, erfið­leikum við fæðingu, með aukinni hættu á mæðra­dauða, skortur á ánægju í kynlífi og áfall­a­streituröskun.

Leið­togar og aðrir innan samfé­lag­anna sem styðja og fram­kvæma kynfæralim­lest­ingar kvenna segja að þær séu nauð­syn­legar til að vernda hinn svokallaða „heiður“ kvenna. Þetta viðhorf endur­speglar útbreidda stað­alí­mynd um kynvitund kvenna og þá trú að henni verði að stjórna. Þar að auki er sú hugmynd lífseig í sumum samfé­lögum að óskornar konur séu óhreinar og þær skuli því hvorki meðhöndla mat né vatn.

Í ljósi reynsl­unnar í Síerra Leóne horfir Arun jákvæðum augum til fram­tíðar.

„Það sem hefur áunnist í þeim samfé­lögum sem við unnum með í Síerra Leóne getur orðið að veru­leika í öðrum Afríku­ríkjum eða jafnvel um allan heim. Samfé­lagsleg umræða er öflug leið í mann­rétt­inda­fræðslu og getur leitt til breyt­inga,“ segir hann að lokum.

Lestu einnig