Kúba: Unglingur vistaður í fangelsi fyrir fullorðna

Jonathan Muir Burgos, 16 ára, hefur verið í haldi frá 16. mars 2026 eftir mótmæli í borginni Morón gegn langvarandi rafmagnsleysi og matarskorti á Kúbu.

Samkvæmt upplýsingum er hann vistaður í Canaleta-fangelsinu sem er fyrir fullorðna. Hann er ákærður fyrir „skemmdarverk“ sem telst alvarlegt brot og getur varðað allt að 15 ára fangelsi.

Fjölskylda hans greinir frá því að í haldi hafi líkamlegri og andlegri heilsu hans hrakað og að hann hafi ekki fengið fullnægjandi læknisaðstoð.

SMS-félagar Amnesty krefjast þess að stjórnvöld leysi Jonathan Muir Burgos tafarlaust úr haldi. Þangað til þarf að tryggja honum vernd gegn ofbeldi og illri meðferð, sjá til þess að hann sé ekki hafður í haldi með fullorðnum, að hann fái fullnægjandi heilbrigðisþjónustu og reglulegan aðgang að fjölskyldu sinni og lögfræðingi.