Yfirlýsing frá Íslandsdeild Amnesty International
Íslandsdeild Amnesty International harmar samþykkt Alþingis á lögum um brottfararstöð (varðhaldsstöð) og telur samþykkt laganna alvarlegt áhyggjuefni fyrir mannréttindavernd á Íslandi.
Með lögunum hefur Alþingi ákveðið að heimila frelsissviptingu fólks sem hefur ekki gerst sekt um refsiverða háttsemi heldur á yfir höfði sér brottvísun úr landi. Um er að ræða fólk sem í mörgum tilvikum hefur leitað hingað eftir vernd og er þegar í viðkvæmri stöðu.
Í umsögn sinni um frumvarpið frá 27. nóvember 2025 varaði Íslandsdeild Amnesty International við því að frumvarpið fæli í sér hættu á fjölþættum og alvarlegum mannréttindabrotum. Deildin hvatti stjórnvöld til að falla frá frumvarpinu og móta þess í stað úrræði sem samræmast alþjóðlegum mannréttindaskuldbindingum Íslands. Íslandsdeild Amnesty International harmar að stjórnvöld hafi ekki tekið athugasemdir deildarinnar til greina við samþykkt þessara laga. Frelsissvipting er eitt alvarlegasta inngrip sem ríkið getur beitt gagnvart einstaklingi. Samkvæmt alþjóðlegum mannréttindastöðlum ber stjórnvöldum að sýna fram á að slík ráðstöfun sé nauðsynleg, lögmæt og að vægari úrræði séu ekki tiltæk. Íslandsdeild Amnesty International telur að lögin sem Alþingi hefur nú samþykkt fullnægi ekki þessum kröfum.
Sérstakar áhyggjur vekur að lögin gera áfram ráð fyrir frelsissviptingu barna. Þótt breytingar hafi verið gerðar á frumvarpinu í meðförum Alþingis breyta þær ekki þeirri staðreynd að börn geta enn verið vistuð í lokuðu úrræði vegna stöðu foreldra sinna sem umsækjendur um alþjóðlega vernd eða einstaklingar sem sæta brottvísun. Íslandsdeild Amnesty International bendir á að slíkt samrýmist ekki skuldbindingum Íslands samkvæmt Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.
Alþjóðleg mannréttindaviðmið eru skýr um að börn eigi ekki að sæta frelsissviptingu vegna stöðu sinnar eða foreldra sinna í málum sem varða alþjóðlega vernd eða brottvísun. Slík frelsissvipting samrýmist ekki meginreglunni um að það sem barni er fyrir bestu skuli ávallt ráða för í öllum ákvörðunum stjórnvalda sem varða börn.
Amnesty International hefur jafnframt bent á að lögin veiti stjórnvöldum víðtækar heimildir til frelsissviptingar og valdbeitingar gagnvart fólki sem hefur takmarkaða möguleika til að verja réttindi sín. Því fylgir veruleg hætta á óhóflegum og íþyngjandi aðgerðum gagnvart einstaklingum sem njóta þegar takmarkaðrar verndar.
Ísland hefur skuldbundið sig til að virða og vernda mannréttindi allra sem dvelja innan lögsögu ríkisins. Með samþykkt þessara laga hefur Alþingi valið leið sem byggir á frelsissviptingu fremur en mannúðlegum og réttindamiðuðum úrræðum.
Íslandsdeild Amnesty International krefst þess að stjórnvöld endurskoði lögin án tafar og tryggi að frelsissvipting verði aðeins beitt sem síðasta úrræði, að undangengnu einstaklingsbundnu mati og þegar sýnt hefur verið fram á að vægari úrræði séu ekki tiltæk.
Jafnframt krefst deildin þess að börn og aðrir einstaklingar í sérstaklega viðkvæmri stöðu, þar á meðal fatlað fólk, þolendur pyndinga og mansals, fólk með alvarlega líkamlega eða andlega heilsufarskvilla og eldra fólk, verði ekki vistuð í varðhaldsstöð.
Mannréttindi eru algild. Þau gilda fyrir okkur öll – einnig þau sem leita alþjóðlegrar verndar og þau sem eiga yfir höfði sér brottvísun.
Virðingarfyllst,
f.h. stjórnar Íslandsdeildar Amnesty International

Formaður Íslandsdeildar Amnesty International


