Mikilvægt er að vernda og hlusta á samtök kvenna í leit að horfnum ástvinum sínum sem hyggjast efna til friðsamlegra mótmæla samhliða opnunarleik heimsmeistaramót Alþjóðaknattspyrnusambandsins FIFA 2026 á leikvanginum í Mexíkóborg. Heimsmeistaramótið hefst þann 11. júní og stendur til 19. júlí.
Búist er við að þúsundir taki þátt í kröfugöngu í Mexíkóborg sem konur hafa skipulagt í minningu horfinna ástvina sinna. Margir þeirra voru neyddir til að ganga til liðs við skipulagða glæpahópa eða voru myrtir fyrir að standa uppi í hárinu á þeim. Amnesty International mun fylgjast með mótmælunum á vettvangi.
Samkvæmt skráningu frá 25. maí 2026 í þjóðskrá landsins voru 134.460 einstaklingar skráðir horfnir. Þar sem stjórnvöld hafa brugðist skyldum sínum hafa konurnar sjálfar neyðst til að leita horfinna ástvina sinna í leit að sannleika, réttlæti og skaðabótum. Þær fylla þannig í það tómarúm sem myndast þegar valdhafar líta undan.
„Á meðan tugir milljóna um allan heim búa sig undir að fylgjast með því sem FIFA kallar „stærstu opnunarhátíð jarðarinnar“, munu þúsundir hugrakkra kvenna í Mexíkó nýta tækifærið til að halda út götur úti og minna heiminn á að ástvinir þeirra eru enn horfnir og að leitin að þeim heldur áfram,“
Edith Olivares Ferreto, framkvæmdastjóri Amnesty International í Mexíkó.
Þrátt fyrir að yfirvöld hafi veitt leyfi fyrir kröfugöngunni verða konur sem leita að horfnum ástvinum sínum fyrir daglegum árásum og rógburði, þær eru gerðar tortryggilegar og jafnvel sóttar til saka.
Amnesty International hvetur yfirvöld í öllum ríkjum Mexíkó til að virða rétt fólks til friðsamlegra mótmæla í hvívetna og láta af öllum aðgerðum sem gætu leitt til þess að mótmæli verði bæld niður. Fylgst verður grannt með þróun mála um allt land.

„Fjöldi horfinna einstaklinga í Mexíkó er meiri en fjöldi áhorfenda sem sækir opnunarleik heimsmeistaramótsins. Það er kominn tími til að mexíkósk stjórnvöld hlusti á konurnar, sem eiga rétt á sannleika, réttlæti og fullnægjandi skaðabótum,“
Edith Olivares Ferreto, framkvæmdastjóri Amnesty International í Mexíkó.
Ein helsta mannréttindaógnin á heimsmeistaramótinu er hættan sem mótmælendur í Mexíkó standa frammi fyrir. Amnesty International vakti athygli á þessu í skýrslu sem birt var þann 30. mars síðastliðinn. Þar er greint frá því að hætta sé á að friðsamleg mótmæli verði bæld niður í öllum þremur löndunum sem halda heimsmeistaramótið en einnig er vakin athygli á mannréttindabrotum sem tengjast bandarískri innflytjendastefnu sem hefur leitt til mikillar aukningar á ólögmætum fjöldahandtökum, fjöldavarðhaldi og brottvísunum. Í Kanada er hætta á að fólk sem glímir við heimilisleysi verði hrakið burt af götunummeðal annars í gestgjafaborgunum Toronto og Vancouver.
Þrátt fyrir ítrekaðar kröfur frá Amnesty International, fótboltaaðdáendahópum og öðrum mannréttindasamtökum hafa FIFA og yfirvöld í löndunum sem halda mótið ekki enn opinberlega skuldbundið sig til að tryggja að viðburðir og samkomur mótsins geti farið fram án afskipta innflytjendayfirvalda og að friðsamleg mótmæli verði heimiluð innan sem utan keppnisleikvanganna. FIFA hefur auk þess enn ekki svarað bréfi Amnesty International þar sem óskað var eftir slíkri skuldbindingu og nánari útskýringum á því hvaða fánar og skilti yrðu bönnuð á svæðum sem tilheyra FIFA.
Það er ekki aðeins okurverð á miðum sem kemur í veg fyrir að margt fólk geti notið heimsmeistaramótsins til fulls heldur hafa FIFA og yfirvöld í löndunum sem halda mótið ekki gefið loforð til að tryggja réttindi fótboltaaðdáenda og nærsamfélaga.
Edith Olivares Ferreto, framkvæmdastjóri Amnesty International í Mexíkó.
„Knattspyrna getur ekki sameinað heiminn samtímis og fjöldabrottvísanir eiga sér stað með skelfilegum afleiðingum fyrir fjölskyldur sem ýta undir ótta og sundrungu eða þegar fólki er meinað að tjá skoðanir sínar á frjálsan hátt.“


