Umsögn Íslandsdeildar Amnesty International um frumvarp til laga um Mannréttindastofnun Íslands

Íslandsdeild Amnesty International fagnar frumvarpi til laga um Mannréttindastofnun Íslands. Samtökin hvetja til þess að lagasetningunni verði komið á sem fyrst og minna á að á íslenskum stjórnvöldum hvílir þjóðréttarleg skylda til að setja á fót mannréttindastofnun sem uppfyllir Parísarviðmið Sameinuðu þjóðanna.

Samtökin fagna því að sjálfstæði íslenskrar mannréttindastofnunar sé tryggt með því að láta hana heyra undir Alþingi frekar en framkvæmdarvaldið. Með því er tryggt að stofnunin sé óháð
handhöfum framkvæmdarvaldsins, sem er sérstaklega mikilvægt í ljósi þess mikilvæga eftirlits sem stofnuninni er ætlað að sinna. Fyrirkomulagið tryggir enn fremur að Alþingi geti sinnt því hlutverki að sjá til þess að lög séu í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar á sviði mannréttinda.