SMS

29. ágúst 2024

Venesúela: Fjöldi einstak­linga í viðkvæmri stöð í haldi fyrir mótmæli

Að minnsta kosti tvö þúsund einstak­lingar voru hand­teknir fyrir að mótmæla eða gagn­rýna ríkis­stjórnina á tíma­bilinu 29. júlí til 7. ágúst.

Ungt fólk er í meiri­hluta, þar á meðal a.m.k. 105 einstak­lingar á aldr­inum 13-17 ára. Að minnsta kosti 16 eru í varð­haldi, þar á meðal fólk með sjón- og heyrn­ar­skerð­ingu.

Traustar heim­ildir eru fyrir því að fólk sé í varð­haldi án samskipta við umheiminn og lögfræði­að­stoðar sem eykur hættuna á pynd­ingum og annarri illri meðferð.

SMS-félagar krefjast þess að allir einstak­lingar sem hafi nýtt rétt sinn til að mótmæla séu leystir úr haldi og að fólk í viðkvæmum hópum sé verndað.

Skráðu þig í SMS-aðgerðanetið hér.

Lestu einnig