Nígería: Unglingsstúlka lést í kjölfar nauðgunar
Keren-Happuch Aondodoo Akpagher var 14 ára stúlka og nemandi í Premier Academy í Abuja í Nígeríu. Grunur er um að henni hafi verið nauðgað í skólanum en hún dó nokkrum dögum síðar, 22. júní 2021. Krufning bendir til þess að hún hafi látist að völdum sýkingar sem hún fékk í kjölfar nauðgunar.

