Síur í notkun

4 niðurstöður

  • Sýrland

    Í mars 2011 gerðu Sýrlendingar uppreisn þar sem þeir söfnuðust saman og kröfðust umbóta og frelsis frá kúgun stjórnvalda. Stjórnvöld brugðust við af hörku sem endaði í hrikalegum vopnuðum átökum fram til ársins 2024. Ríkisstjórn Bashar al-Assad var steypt af stóli 8. desember 2024 og endaði þar með 54 ára einræðistíð Assad-fjölskyldunnar í Sýrlandi. 

  • Margverðlaunuð sýrlensk kvikmyndagerðarkona á RIFF

    Margverðlaunuð sýrlensk heimildarmyndagerðarkona, aðgerðasinni og rannsakandi, Lina, verður gestur Íslandsdeildar Amnesty International dagana 27. september til 1. október á RIFF alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík. Hin rómaða heimildarmynd hennar 5 Seasons of Revolution verður sýnd á hátíðinni þriðjudaginn 30. september kl. 19:10 í Háskólabíó, sal 2. Að henni lokinni verða pallborðsumræður og spurningum svarað úr sal.

  • Sýrland: Aftökur án dóms og laga í Suwayda

    Ný rannsókn Amnesty International leiddi að þeirri niðurstöðu að stjórnvöld og herlið tengd þeim hefðu tekið fjölda Drúsa í Suwayda af lífi án dóms og laga. Þessi hryllilegu mannréttindabrot eru enn ein grimmilega áminningin um hörmulegar afleiðingar sem refsileysi í Sýrlandi hefur haft þar sem núverandi stjórnvöld og herlið tengd þeim drepa án ótta við að verða sótt til saka.

  • Sýrland: Ný ríkisstjórn þarf að tryggja réttinn til sannleikans, réttlætis og skaðabóta

    Ríkisstjórn Sýrlands þarf að skuldbinda sig skilyrðislaust til að tryggja réttinn til sannleikans, réttlætis og skaðabóta vegna tuga þúsunda horfinna einstaklinga með því að hefja leit þar í landi að þeim sem enn hafa ekki fundist og sjá til þess að gerendur sæti ábyrgð. Þetta kemur fram í skýrslu Amnesty International sem er birt í tilefni af alþjóðadegi fórnarlamba þvingaðra mannshvarfa þann 30. ágúst, og níu mánuðum eftir fall ríkisstjórnar Bashar al-Assads.