Sigrar í baráttunni fyrir aðgengi að þungunarrofi
Aðgengi að öruggu þungunarrofi er nauðsynlegt til að unnt sé að njóta mannréttinda til fulls. Á síðustu 25 árum hafa fleiri en 50 lönd breytt löggjöf og bætt aðgengi að þungunarrofi.
Aðgengi að öruggu þungunarrofi er nauðsynlegt til að unnt sé að njóta mannréttinda til fulls. Á síðustu 25 árum hafa fleiri en 50 lönd breytt löggjöf og bætt aðgengi að þungunarrofi.
Glæpavæðing þungunarrofs kemur ekki í veg fyrir að fólk sæki sér slíka þjónustu heldur gerir hana einungis mun óöruggari. Í Argentínu, eins og mörgum öðrum löndum, er þungunarrof refsivert nema í undantekningartilfellum.
Þann 4. febrúar var perúvíska ríkisborgaranum Vanessu Gómez vísað frá Argentínu ásamt tveggja ára syni sínum eftir að hafa búið þar í landi í 15 ár. Hún var neydd til að skilja eftir hin börnin sín tvö, 5 og 14 ára, án þess að kveðja þau. Brottvísunin á rætur að rekja til rekja til þess að Vanessa sat af sér dóm árið 2014. Útlendingaeftirlitið í Argentínu verður að ógilda skipunina og sameina fjölskylduna á ný þar sem brotið er á réttindum barnanna samkvæmt lands- og alþjóðalögum.