Góðar fréttir
3. febrúar 2021Aðgengi að öruggu þungunarrofi er nauðsynlegt til að unnt sé að njóta mannréttinda til fulls. Á síðustu 25 árum hafa fleiri en 50 lönd breytt löggjöf og bætt aðgengi að þungunarrofi.
Argentína
Argentína bættist í hópinn þann 30. desember 2020 þegar þungunarrof var loks lögleitt þar í landi. Það voru söguleg tímamót í þágu mannréttinda fyrir konur, stúlkur og annað fólk sem getur orðið þungað. Lögin leyfa þungunarrof fram að 14. viku meðgöngu. Eftir það er þungunarrof löglegt sé líf eða heilsa móður í hættu.
„Þetta er sigur fyrir kvennahreyfinguna í Argentínu sem hefur barist fyrir þessum réttindum í áratugi. Amnesty International mun fylgjast með því hvort stjórnvöld standi við það að tryggja aðgengi að löglegu þungunarrofi í öllu landinu.“
Mariela Belski, framkvæmdastjóri Amnesty International í Argentínu.
Slóvakía
Stjórnvöld í Slóvakíu hafa reynt að skerða aðgengi að löglegu þungunarrofi. Þungunarrof er löglegt í Slóvakíu fram að 12. viku meðgöngu. Árið 2019 reyndu stjórnvöld hins vegar að skerða aðgengið en þingið hafnaði því í desember sama ár. Þá átti að leggja til skyldu um ómskoðun fyrir þungunarrof en það hefði dregið úr sjálfsákvörðunarrétti kvenna og þungaðs fólks ásamt því að ýta undir skömm.
Árið 2020 var nýtt frumvarp lagt fram um 96 klukkustunda biðtíma, læknisfræðilegt samþykki á grundvelli heilsufars og að gefa upp ástæðu til að geta farið í þungunarrof. Frumvarpinu var mótmælt víða um heim. Íslandsdeild Amnesty International tók málið upp í september í netákalli og SMS-aðgerðaneti þar sem söfnuðust 2.065 undirskiftir þar sem krafist var að þingið hafnaði frumvarpinu.
Mótmælin báru árangur og það var mikið fagnaðarefni þegar þingið í Slóvakíu hafnaði frumvarpinu í október 2020.
Pólland
Baráttan fyrir öruggu aðgengi að öruggu þungunarrofi er langt frá því lokið. Mótmæli brutust út um allt Pólland í október eftir úrskurð stjórnlagadómstóls sem í raun bannaði þungunarrof nema í tilfellum þar sem líf eða heilsa móður er í hættu eða þungun er afleiðing nauðgunar. Þann 27.janúar 2021 tók úrskurðurinn gildi sem þýðir að 95% af öllum þungunarrofum sem hafa verið framkvæmd í landinu verða nú ólögleg. Það leggur líf kvenna og fólks sem getur orðið þungað í hættu.
Við stöndum með baráttufólki fyrir aðgengi að öruggu þungunarrofi í Póllandi.
Lestu einnig
Þú ætlar að styðja og .
Skrifaðu undir og Amnesty á Íslandi sendir viðeigandi aðilum bréf í þínu nafni. Engar aðrar persónuupplýsingar en nafn þitt munu fylgja bréfinu á viðkomandi stjórnvöld.
Með því að skrifa undir málin samþykkir þú skilmála Íslandsdeildar Amnesty International um undirskriftir og persónuverndarstefnu