Afganistan: Lög um barnahjónabönd árás á réttindi kvenna og stúlkna

Ný tilskipun talibana um að leyfa barnahjónaband er enn ein árásin á réttindi kvenna og stúlkna í Afganistan samkvæmt Amnesty International.

Tilskipun nr. 18 um lög fyrir hjónaskilnað sem talibanar gáfu út opinberlega 14. maí 2026 kveður á um þær kringumstæður sem konur og stúlkur geta óskað eftir skilnaði. Þar eru ákvæði sem staðfesta hjónabönd á barnsaldri sem skerða möguleika kvenna og stúlkna til að hafna slíku hjónabandi eða slíta því.

„Þessi lög gera stöðu kvenna og stúlkna í Afganistan enn verri. Þær eru í raun sviptar öllu sjálfræði þar sem búið er að taka af þeim allt vald til að veita samþykki. Karlkyns ættingjum er veitt stjórn yfir skipulagningu hjónabanda og þær hafa fáar leiðir til að hafna þvinguðu hjónabandi. Þessi ákvæði festa barnahjónabönd í sessi og normgerir þau.“  

Isabelle Lassee, yfir deild Amnesty International um Suður-Asíu.

Fyrir útgáfu þessa regluverks höfðu talibanar ekki sett í lög ákvæði um skilnað hjóna. Við úrlausn ágreinings í hjónabandi og skilnaðar var áður stuðst við trúarlegar tilskipanir talibana, hanafíska túlkun á íslömskum lögum eða víðtækt ákvörðunarvald talibanskra dómara.

Í lögunum eru ýmis vafasöm viðmið varðandi samþykki fyrir hjónabandi, þar á meðal að túlka þögn stúlku sem hefur náð kynþroska þannig að hún feli í sér samþykki fyrir hjónabandi. Slík viðmið auka hættuna á þvinguðu hjónabandi. Feðrum og öfum er gefið víðtækt vald til að skipuleggja hjónaband ólögráða barna sem býður upp á að barnahjónabönd eigi sér stað.  Hjónabönd skipulögð af fjarskyldari ættingjum eru einnig löglega gild við ákveðnar kringumstæður.

Í ósamræmi við alþjóðleg mannréttindalög

Þessi lög eru í ósamræmi við alþjóðleg mannréttindalög sem tryggja vernd gegn barnahjónabandi og þvinguðu hjónabandi ásamt því að tryggja jafnrétti í hjónabandi  sem felur í sér skýrt, frjálst og gagnkvæmt samþykki.

Að auki eru settar verulegar lagalegar og réttarfarslegar hindranir fyrir stúlkur til að mótmæla hjónabandi sínu sem er aðeins leyft með samþykki dómstóla eftir að þær hafa náð kynþroska. Karlmenn geta aftur á móti fengið skilnað einhliða án þess að þurfa vitni, samþykki dómstóla eða flókinnar málsmeðferðar.  

Amnesty International skorar á alþjóðasamfélagið að grípa til tafarlausra aðgerða og beita talibana diplómatískum þrýstingi út frá mannréttindamiðaðri nálgun þar sem krafist er að harkaleg lög og reglur verði felld úr  gildi, formlegt réttarkerfi verði endurreist  og réttarríkið og mannréttindi verði vernduð í Afganistan.