Ísrael/hernumda svæðið í Palestínu: Leysa þarf palestínskan lækni úr geðþóttavarðhaldi í Ísrael

Ísraelski herinn gerði árás á Kamal Adwan-sjúkrahúsið í Mashrou’ Beit Lahiya þann 27. desember 2024 og handtók framkvæmdastjóra þess, barnalækninn Dr. Hussam Abu Safiya. Síðan þá hefur hann sætt geðþóttavarðhaldi án ákæru eða réttarhalda á grundvellli grimmilegrar löggjafar.

Hæstiréttur Ísraels staðfesti nýjustu kröfuna um gæsluvarðhald yfir Dr. Abu Safiya þann 16. júní síðastliðinn. Það þýðir að hann verður í haldi að minnsta kosti fram í október. Dr. Abu Safiya hefur verið haldið í einangrun frá 3. júní síðastliðnum og er enn neitað um nauðsynlega heilbrigðisþjónustu. 

SMS-félagar krefjast þess að ísraelsk stjórnvöld leysi Hussam Abu Safiya skilyrðislaust úr haldi. Þangað til verða þau að tryggja að hann sæti ekki pyndingum eða annarri illri meðferð, auk þess sem þau verða að veita honum nauðsynlega heilbrigðisþjónustu.

Skráðu þig í SMS-aðgerðanetið hér.