Líbanska þingið samþykkti þann 11. ágúst lög um afnám dauðarefsingarinnar þar sem þess í stað er kveðið á um lífstíðarfangelsi með þrælkunarvinnu. Sjö þingmenn lögðu fram lagafrumvarpið fyrir mannréttindanefnd þingsins í október 2025 og eftir að hafa farið í gegnum ferli hefur frumvarpið nú hefur verið samþykkt.
Lögin verða send forsetanum til endanlegrar undirritunar og birt í stjórnartíðindum áður en þau öðlast gildi.
Samþykkt laganna er til marks um þann árangur sem hefur náðst eftir áratugalanga og óþreytandi baráttu líbanskra mannréttindasamtaka og baráttufólks fyrir mannréttindum. Hún ber einnig vott um forystu embættisfólksins sem með þessu staðfestir að dauðarefsingin er grimmileg og ómannúðleg refsing. Henni er oft beitt í kjölfar ósanngjarnrar málsmeðferðar og hún bitnar iðulega á fólki sem stendur höllum fæti.
„Ákvörðun Líbanons um að afnema dauðarefsinguna markar mikil tímamót og er sigur fyrir mannréttindi í landinu. Réttlæti verður að byggjast á mannréttindum en ekki óafturkallanlegri og grimmilegri refsingu. Aftökur hafa ekki farið fram í Líbanon í rúmlega tvo áratugi. Þetta skref tryggir varanlega réttarvernd fyrir réttinn til lífs í stað óöryggis sem fylgir aftökuhléi. Þar með fylgir Líbanon alþjóðlegri þróun í átt að afnámi dauðarefsingarinnar.“
Heba Morayef, svæðisstjóri Amnesty International fyrir Mið-Austurlönd og Norður-Afríku
Til að tryggja að lögunum verði framfylgt verða líbönsk stjórnvöld nú að milda alla dauðadóma og fullgilda helsta alþjóðasamninginn um afnám dauðarefsingarinnar. Jafnframt þurfa þau að ráðast í víðtækar umbætur til að styrkja réttarkerfið með þeim hætti að það byggist á mannlegri reisn, sanngirni og virðingu fyrir mannréttindum. Lögunum verður að fylgja eftir með frekari lagabreytingum, meðal annars til að tryggja að allar refsingar innan réttarkerfisins samræmist mannréttindareglum.
Bakgrunnur
Engin aftaka hefur farið fram í Líbanon frá 17. janúar 2004. Í lok janúar 2026 biðu 85 einstaklingar aftöku samkvæmt upplýsingum fangelsismálastofnunar dómsmálaráðuneytisins. Samþykkt laganna er afrakstur þrotlausrar baráttu innlendra og alþjóðlegra borgaralegra samtaka. Samtökin Lebanese Association for Civil Rights (LACR), National Campaign for the Abolition of the Death Penalty in Lebanon og Association Justice and Mercy (AJEM) hafa verið þar í fararbroddi.
Líbönsk stjórnvöld verða að fullgilda annan valfrjálsan viðauka við alþjóðasamninginn um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi, sem miðar að afnámi dauðarefsingarinnar, til að ekki verði hægt samkvæmt alþjóðalegum mannréttindalögum að afturkalla afnám dauðarefsingarinnar.
Amnesty International er andvígt dauðarefsingunni í öllum tilvikum án undantekninga.
Alls hafa 145 ríki afnumið dauðarefsinguna í lögum eða framkvæmd en 54 ríki halda enn í hana. Líbanon verður að öllum líkindum 114. ríkið til að afnema dauðarefsingu fyrir öll brot þegar lögin taka gildi.

