Xavier Chungu er leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Sambíu. Hann var forsetaframbjóðandi þar til hann dró framboð sitt til baka þann 12. júlí síðastliðinn. Hann var handtekinn þann 28. maí í kjölfar viðtals við hann í hlaðvarpsþætti.
Chungu var ákærður fyrir brot í sjö liðum á lögum um öryggi ríkisins. Hann var einnig ákærður í þremur liðum fyrir að hvetja til uppreisnar (e. sedition) og í einum lið fyrir brot á lögum öryggis- og leyniþjónustu Sambíu. Chungu var synjað um lausn gegn tryggingu þann 10. júlí eftir að ríkissaksóknari gaf út formlega yfirlýsingu þess efnis (e. No Bail Certificate). Sú ákvörðun takmarkar raunverulegt eftirlit með dómstólum. Hún grefur einnig undan þeirri kröfu að gæsluvarðhald skuli byggja á lögmætum grundvelli, vera nauðsynlegt og gæta meðalhófs.
SMS-félagar krefjast þess að yfirvöld í Sambíu leysi Xavier Chungu skilyrðislaust úr haldi þegar í stað. Ákæran á hendur honum byggir eingöngu á því að hann nýtti mannréttindi sín á friðsamlegan hátt, þar á meðal tjáningarfrelsi sitt.
