Viðburðir
15. ágúst 2019Íslandsdeild Amnesty International tekur þátt í Gleðigöngunni Reykjavík Pride laugardaginn 17. ágúst, fyrir fólk sem hefur ekki frelsi til að elska eða vera það sjálft án þess að líf þess sé í hættu.
Líkt og áður mun ungliðahreyfing okkar bæði taka þátt í göngunni sjálfri og standa fyrir undirskriftasöfnun í Hljómskálagarðinum.
Í ár söfnum við undirskriftum fyrir mál Zak Kostopoulos, grísks samkynhneigðs aðgerða- og mannréttindasinna, sem lést 21. september 2018 í kjölfar fólskulegrar líkamsárásar. Hægt er að lesa meira um málið og skrifa undir hér til að krefjast réttlætis.
Amnesty International krefst þess að dómsmálaráðherra Grikklands tryggi að þeir sem bera ábyrgð á dauða Zaks verði dregnir fyrir dóm. Einnig er krafist þess að yfirvöld rannsaki hvort ástæða árásanna hafi verið vegna haturs, mismununar eða annarra fordóma.
Okkur er það mikil ánægja að fá til liðs við okkur aðalframkvæmdastjóra Amnesty International, Kumi Naidoo, sem tekur þátt í göngunni með ungliðahreyfingu Íslandsdeildarinnar á laugardaginn. Kumi Naidoo er reynslumikill aðgerðasinni og hefur lengi starfað í þágu mannréttinda í sínu heimalandi Suður-Afríku auk þess sem hann hefur gegnt starfi aðalframkvæmdastjóra Greenpeace International. Við erum afar þakklát fyrir að njóta liðsauka hans í Gleðigöngunni.
Að þessu sinni leggur Gleðigangan af stað frá Hallgrímskirkju á Skólavörðuholti, stundvíslega kl. 14:00.
Gengið verður eftir Skólavörðustíg, Bankastræti, Lækjargötu, Fríkirkjuvegi og endað á Sóleyjargötu við Hljómskálagarðinn þar sem fram fara útitónleikar að göngu lokinni. Ungliðahreyfingin verður á staðnum og stendur fyrir undirskriftasöfnun fyrir máli Zaks.
Lestu einnig
Þú ætlar að styðja og .
Skrifaðu undir og Amnesty á Íslandi sendir viðeigandi aðilum bréf í þínu nafni. Engar aðrar persónuupplýsingar en nafn þitt munu fylgja bréfinu á viðkomandi stjórnvöld.
Með því að skrifa undir málin samþykkir þú skilmála Íslandsdeildar Amnesty International um undirskriftir og persónuverndarstefnu