Árlegur fundur Norræna ungliðaráðs í Stokkhólmi 2026

Hópur ungliða ásamt starfsmanni Íslandsdeildar Amnesty International varði fjórum dögum með ungliðum Amnesty International frá Svíþjóð, Noregi og Finnlandi á árlegum fundi Norræna ungliðaráðsins (e. Nordic Youth Annual Meeting, NYAM) í Stokkhólmi í Svíþjóð dagana 11.-14. júní. Tveir ungliðar ungliðahreyfingar Íslandsdeildar sitja í ráðinu og fór einn þeirra út ásamt þremur öðrum ungliðum.

Markmið ferðarinnar var að mynda og styrkja tengsl og samvinnu ungliða þvert yfir landamæri Norðurlandanna í baráttunni við að vernda mannréttindi og skipuleggja sameiginlega aðgerð í öllum þátttökulöndum eftir heimkomu. Þema ársins í ár var „Andspyrna: Afhjúpum áróður, stöndum gegn ritskoðun og verjum mannréttindi“ (Resist: Exposing Propaganda, Challenging Censorship & Defending Human Rights).

Lögð var áhersla á að:

  1. Læra aðferðir og færni sem styrkja ungt fólk í aðgerðastarfi og mannréttindabaráttu.
  2. Rýna í hvernig áróður, ritskoðun og rangfærslur hafa áhrif á mannréttindi og ræða leiðir til að standa vörð um mannréttindi.
  3. Hitta sérfræðinga og grasrótaraðgerðasinna, spyrja spurninga og læra af reynslu þeirra.
  4. Kynnast öðru ungu fólki frá Norðurlöndunum sem deilir ástríðu fyrir mannréttindum.
Íslenski hópurinn á NYAM. F.v. Eron thor, Stefanía Sigurdís, Heiðrún Vala, Urður og Hera Sjöfn.

Í framhaldi af norræna ungliðafundinum verður áfram unnið að sameiginlegri aðgerð sem stefnt er á að verði haldin síðar á árinu. Markmið aðgerðarinnar er að auka vitund almennings um bakslag í mannréttindum á Norðurlöndum með því að afhjúpa og greina áróður, ritskoðun og rangfærslur og veita upplýsingar um hvernig hægt er að bregðast við þeim. Einnig er markmiðið  að fá fleira fólk til þess að taka afstöðu, láta í sér heyra og verða hluti af mannréttindahreyfingu.

„Við viljum sýna hvernig áróður og ritskoðun hefur raunverulega áhrif á fólk og mannréttindi. Með mannlegum sögum sem liggja að baki fyrirsögnum í fjölmiðlum vonumst við til þess að byggja upp skilning, samkennd og vilja til aðgerða.“ 

Þátttakendur á árlega fundi Norræna ungliðaráðs Amnesty International.

Reynsla íslenskra þátttakenda

„Þetta var virkilega áhugaverð ferð. Það var gaman að fá að kynnast öðru ungu fólki sem deilir svipuðum hugsjónum og ég og hvað það er að gera í sínum löndum til að berjast fyrir mannréttindum.“

Urður Falsdóttir, ungliði
Starfsfólk og ungliðar á NYAM 2026.

„Á tímum þar sem gríðarlegt bakslag á sér stað í mannréttindabaráttunni um allan heim er ekki alltaf létt að halda í baráttuanda og von en verkefni eins og árlegi norræni ungliðafundurinn minna mig á af hverju ég vel að vinna hjá samtökum eins og Amnesty International.“

Stefanía Sigurdís Jóhönnudóttir, starfsmaður
Fræðsla á NYAM.

„Þátttakan í NYAM var ótrúlega skemmtileg og lærdómsrík. Það var svo gott að hitta ungmenni af ólíkum bakgrunnum sem hafa upplifað alls konar en eiga það öll sameiginlegt að berjast fyrir betri heimi. Ég er mjög ánægð, þakklát og full af von og eldmóði eftir að hafa tekið þátt í og stýrt NYAM. “

Heiðrún Vala Hilmarsdóttir ungliði og fulltrúi Íslands í Norræna ungliðaráðinu
Norræna ungliðaráð Amnesty International.

„Það var ótrúlega lærdómsríkt að fara á NYAM og ég fékk að kynnast svo mikið af nýjum manneskjum og sjónarhornum. Mér fannst andrúmsloftið mjög eflandi og drifkraftur ungmennanna var mjög hvetjandi.“

Hera Sjöfn Atladóttir ungliði
Umræður á NYAM.

„NYAM er eitthvað sem ég held að allir þurfi að upplifa einu sinni á ævi sinni. Aldrei hef ég verið umkringdur fólki sem er allt svo mismunandi en samt svo samtaka í vilja sínum til að hjálpa fólki og berjast fyrir mannréttindum. Þessir ungliðar voru í alvörunni fallegustu sálir sem ég hef kynnst, fundurinn lærdómsríkur og starfsfólkið svo skilningsríkt. Talað var um stór mál, allir fengu að deila skoðunum, það var hlustað á alla og aldrei neinn skilinn út undan. Mér leið vel allan tímann og ég get ekki mælt meira með þessu. Þetta er fullkomið fyrir einstaklinga sem hafa áhuga á mannréttindum.“

Eron Thor Jónsson ungliði

Myndir úr ferðinni

Eron Thor og Heiðrún Vala á vinnusmiðju til að útbúa stuttermaboli.
Bolir skreyttir með ýmsum hætti í vinnusmiðju.
Skrifað á bol í vinnusmiðju.
Ungliðar í umræðumhópum á NYAM
Upphitunaræfing á NYAM.
Æfing í að setja sig í spor annars fólks